Anna Kristjánsdóttir, vélstjóri og íbúi á Tenerife, réðist í algjöra lífsstílsbreytingu í byrjun þessa árs og setti sér það markmið að ná af sér 22 kílóum á þessu ári.
Anna hefur haldið fylgjendum sínum á Facebook vel upplýstum um hvernig átakið gengur og er skemmst frá því að segja að Anna hefur nú náð markmiði ársins og gott betur en það.
Anna segir í nýrri færslu að hún hafi varla hreyft sig síðustu vikuna í maímánuði. Eins og dyggir lesendur Hringbrautar vita eflaust fór seinni sprautan af bóluefni Pfizer ekki vel í Önnu. Hún hafði sett sér markmið um að ganga 310 kílómetra í maímánuði en þeir urðu 262.
Sjá einnig: Anna birti óhugnanlega mynd eftir bólusetningu: Hélt að handleggurinn væri að detta af
„Ég skammast mín í hástert. Ég viðurkenni alveg að ég lagðist lasin eftir seinni sprautuna af Pfizer, en það var samt algjör óþarfi að gefast upp fyrir ofureflinu. Ég vann samt annað afrek, mun stærra og betra,“ segir Anna sem kemur svo að máli málanna.
Markmið hennar á árinu var að komast niður fyrir 77,6 kíló og komast í „kjólinn fyrir jólin“ eins og hún orðar það pent.
„Í maí fór ég 14 sinnum á toppinn á Stóru-Klif, en 30 sinnum frá áramótum. Markmiðið náðist um 25. maí, en nú er ég búin að komast heilu kílói neðar á vigtinni. Búin að ná af mér 23,5 kílóum á árinu 2021 og var samkvæmt vigtinni 76,1 kg í gærmorgun. Aðeins léttari í morgun,“ segir Anna sem kveðst stolt af sjálfri sér – enda má hún vera það.
Anna segir að þessu átaki sé lokið og engar frekari töluverði birtar. Nú hefjist hins vegar baráttan við að viðhalda þyngdarleysinu.