„Haraldur á að vera okkur öllum fyrirmynd. Þetta er ekki síst innblástur varðandi það hversu hratt hlutir geta gengið fyrir sig með samtakamætti og kannski smá brjálæði. Þarna kemur hann, grípur boltann og þrykkir öllu í gang.“
Þetta segir leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir í samtali við Fréttablaðið í dag. Þar er sagt frá mögnuðum viðbrögðum Haraldar Þorleifssonar en Unnur sótti dóttur í Reykjadal fyrir tveimur vikum og sá að staðurinn var byrjaður að drabbast niður og aðgengismálum ábótavant.
Unnur brá því á það ráð að senda póst á Harald vegna málsins og er óhætt að segja að hann hafi brugðist skjótt. Haraldur svaraði um hæl og verður fyrsti rampurinn vígður á morgun.
„Við erum í alvörunni í sjokki yfir því hversu hratt þetta hefur gengið fyrir sig. Það eru tvær vikur síðan við sóttum dóttur okkar í Reykjadal,“ segir Unnur. Í frétt Fréttablaðsins í dag kemur fram að ramparnir í Reykjadal hafi margir hverjir verið orðnir lúnir og þreyttir.
Unnur Ösp og eiginmaður hennar, Björn Thors, þekktu Harald ekki neitt áður en að þessu kom.
„Þessi staður er uppfullur af slíkum mannauði og kærleika að maður á ekki orð af þakklæti en húsnæðið er byrjað að drabbast niður. Og merkilegt nokk eru aðgengismálin ekki í lagi. Við fórum að tala um þetta og í algjöru hvatvísiskasti settist ég niður við tölvuna og sendi á Harald. Ég þekkti hann ekki neitt. En ég segi honum söguna, hann svarar örskömmu síðar og spyr hvað þurfi að gera og hvernig.“
Nánar á vef Fréttablaðsins.