„Ég tárast og fæ hroll þegar ég horfi á ljósmynd af mér fyrir akkúrat ári síðan,“ segir leikkonan Dóra Jóhannsdóttir í færslu á Facebook-síðu sinni.
Í færslunni fagnar hún því að hafa verið edrú í eitt ár.
„Að hætta að drekka var ákvörðun sem ég tók fyrir tæpum 3 árum, enda neyslan farin að hafa mikil neikvæð áhrif á líf mitt. En það reyndist þrautinni þyngra að ná því. Botninn varð alltaf dýpri og dýpri og fyrir ári síðan var ég búin að missa alla stjórn, líf mitt var komið í algjöra rúst og örvæntingin var rosaleg,“ segir Dóra í færslunni.
Dóra segist hafa þurft mikla hjálp sem hún blessunarlega fékk og kveðst hún vera óendanlega þakklát fólkinu sem hefur hjálpað henni og staðið við bakið á henni í þessu bataferli. „Ég hefði aldrei getað þetta ein,“ segir hún.
Hún segist reglulega kíkja á umrædda ljósmynd sem tekin var fyrir ári til að minna sig á hvaðan hún kemur.
„Ég hef breyst mikið og þroskast og líf mitt í dag er ótrúlega fallegt og gott og sífellt að koma mér á óvart. Ég hef fundið fyrir hamingju og frið sem ég vissi ekki að væri til! Ég er stútfull af þakklæti og vil koma því fram að ég er til staðar fyrir hvern þann sem vill hjálp við að verða edrú.“
Dóra hefur haft góðar ástæður til að fagna að undanförnu en í desember greindi Fréttablaðið frá því að hún hefði útskrifast úr Hússtjórnarskólanum.
„Ég hefði viljað að námið væri mörg ár en ekki bara ein önn. Brjáluð vinna frá morgni til kvölds, blæðandi fingur og vöðvabólga en alltaf hlýtt í hjartanu,“ sagði Dóra við það tilefni.
Eitt ár edrú í dag!!!! ❤🤩❤🙏🥳❤ Að hætta að drekka var ákvörðun sem ég tók fyrir tæpum 3 árum, enda neyslan farin að hafa...
Posted by Dóra Jóhannsdóttir on Sunnudagur, 7. febrúar 2021