Móðir Loga fékk bréf frá Landsbankanum og svo var hringt tvisvar – „Henni fannst þetta svolítið undarlegt“

„Hér hefur eitthvert fólk í jakkafötum á fundum búið til reglur. Sennilega til að tryggja skýrleika, gagnsæi eða yfirsýn eða eitthvert álíka ofnotað orð,“ segir fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson í pistli sínum í Sunnudagsmogganum.

Logi rifjar upp að áður fyrr hafi fólk farið í bankann og þekkt jafnvel gjaldkerann sinn. Nú sé öldin önnur og flestir geri upp sín mál í heimabankanum.

„Nema mamma. Hún hefur takmarkaða trú á svona tækni. Auk þess er hún ekki með rafræn skilríki. Vegabréfið hennar er útrunnið og ökuskírteinið rann út fyrir um það bil 40 árum. Þess vegna hefur það verið venjan hjá okkur að fá okkur bíltúr í Landsbankann á fyrsta virka degi hvers mánaðar. Þar höfum við alltaf fengið kaffi, þægilegan gjaldkera og stimplaða reikninga sem sýna að móðir mín er skuldlaus við guð og menn. Eða alla vega menn,“ segir Logi.

Hann bendir á að heimsfaraldurinn hafi breytt ýmsu og nú þurfi að hringja til að ganga frá málum.

„Svo gerist það í vikunni að það færist spenna í leikinn. Móðir mín fær bréf frá bankanum þar sem hún er spurð hvaðan tekjur hennar komi og hvort hún standi í einhverjum milliríkjaviðskiptum. Henni fannst þetta reyndar svolítið undarlegt en við fylltum þetta samviskusamlega út. Degi seinna er hringt tvisvar frá bankanum og hún beðin að skila þessu sem fyrst. Bankanum bráðliggi á þessum upplýsingum.“

Logi segir að móðir hans hafi hringt í kjölfarið og athugað hvort hann gæti ekki komið þessu strax til skila. Mögulega geti Logi farið í bankann, bankað á dyrnar og starfsmenn tekið við bréfinu. „Það verði helst að gerast í dag.“

Logi segist vel skilja að peningaþvætti sé alvarlegt mál og að til séu reglugerðir og form sem þarf að fylla út svo fólk lendi ekki í einhverjum vandræðum.

„En af því að ég veit líka að það er mikið að gera í bönkunum og alltaf verið að fækka fólki, þá langar mig bara að benda ykkur á að þið þurfið ekki að hafa neinar sérstakar áhyggjur af móður minni. Ég heimsæki hana oft og veit að hún er ekki í neinu misjöfnu. Hún er til dæmis ekki að rækta neitt í bílskúrnum. Það væri líka ómögulegt fyrir öllu draslinu sem við bræðurnir geymum þar og lofum reglulega að fara að taka. Hún er reyndar með gróðurhús en þar eru bara rósir. Hún er ekki með neinar tekjur frá útlöndum og yfirhöfuð engar tekjur nema frá lífeyrissjóði og tryggingastofnun. Ég veit þetta vegna þess að ég eyði um það bil 40 sekúndum á ári í að gera skattaskýrsluna hennar. Hún er alveg einstaklega óspennandi.“

Logi bætir við að móðir hennar sé einstaklega skemmtileg kona sem les mikið, horfir aðeins á sjónvarp og fer reglulega til lækna sem finna aldrei neitt almennilegt að henni.

„Hún er líka mjög hreinskilin og opinská og ég er nokkuð viss um að ef hún væri í meiri háttar peningaþvætti eða eiturlyfjasölu þá væri hún búin að missa það út úr sér við mig. Ég geri mér grein fyrir því að bankar standa ekki í svona veseni að gamni sínu. Hér hefur eitthvert fólk í jakkafötum á fundum búið til reglur. Sennilega til að tryggja skýrleika, gagnsæi eða yfirsýn eða eitthvert álíka ofnotað orð. Svo þurfa bankarnir bara að fylgja þessum reglum. En við ykkur, ágætu starfsmenn Landsbankans, vil ég segja: Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af mömmu. Hún er með allt sitt á hreinu.“