Móðir í Laugar­nesi með opið bréf til borgar­full­trúa: „Á­hyggjur af ung­lingum sem þurfa að ganga í gegnum Laugar­dalinn í myrkri“

Ingi­björg Vil­bergs­dóttir, móðir í Laugar­nesi og full­trúi í skóla­ráði og stjórn for­eldra­fé­lags Lauga­lækjar­skóla segir íbúa í Laugar­dal lang­þreytta á bíða eftir á­kvörðun borgar­yfir­valda um fram­kvæmdir á skóla­hús­næði við Laugar­nes­skóla, Lauga­lækjar­skóla og Lang­holts­kóla.

„Skýrslur sér­fræðinga,um­sagnir og skila­bréf hafa verið birtar, þar sem allir er sam­mála að þörf sé á endur­bótum og við­byggingum, og að mikill vandi sé fram­undan ef ekki verður ráðist strax í fram­kvæmdir. Síðan 7. bekkur var færður vegna pláss­leysis úr Laugar­nes­skóla í Lauga­lækjar­skóla fyrir rúmum tuttugu árum hafa skóla­stjórn­endur endur­tekið bent á þörfina á endur­bótum og við­gerðum á skóla­byggingum. Núna er þolin­mæði hverfa­sam­fé­lagsins á þrotum­. Stjórnir for­eldra­fé­laga grunn­skólanna við Laugar­dalinn hafa skrifað opin­ber­lega um af­stöðu sína og í­trekað að sviðs­mynd 1 verði fyrir valinu, þ.e. að byggt verði nú þegar við alla skólanna í grein sem birtist 1. mars 2022.,“ skrifar Ingi­björg í greiná Vísir.is sem ber heitið Börn í Laugar­­dal föst í hamstur­hjóli ferla­­greininga borgarinnar.

„Spár um stöðugan vaxandi nem­enda­fjölda í skýrslu sam­ráðs­hóps skóla- og frí­stunda­sviðs um fram­tíðar­skipu­lag í Laugar­dalnum segja að eftir 8 ár skorti 429 börnum við­eig­andi rými inni í sínum hverfis­skóla. Þetta er ó­af­sakan­leg stað­reynd en rétt­lætir alls ekki þær gífur­legu hverfis­legu­breytingar sem svið­myndir II og III munu hafa í för með sér.“

Ingi­björg segir að Laugar­nes- og Lang­holts­hverfi eru rót­gróin hverfi þar sem ríkir sátt um hverfa- og skóla­skipu­lagningu.

„Stjórnir for­eldra­fé­laganna kæra sig ekki um að gjör­breyta hverfa­skipu­laginu einungis breytinganna vegna, eins og aðrar til­lögur en sviðs­mynd I gerir ráð fyrir. Í skýrslu sem kom út í septem­ber 2022 um mat á kostnaði, á­hættu- og styrk­leika­mati kemur margt fram sem að þegar hafði verið gagn­rýnt í sam­eigin­legri grein stjórnar for­eldra­fé­laganna s.s. að endur­bætur á nú­verandi skólum þurfi að eiga sér stað, að ó­vissa sé um stað­setningar, hönnun, skipu­lag og fram­kvæmdir. Aðrar sviðs­myndir en sviðs­mynd I skauta fram hjá dýr­mættum gildum hvers skóla s.s sögu, hefðum og öðrum sér­ein­kennum,“ skrifar Ingi­björg.

Hún segir enn fremur að hverfin eru ekki sam­liggjandi heldur klofin af einu stærsta græna svæði höfuð­borgarinnar

„Því má ekki gleyma að Laugar­nes- og Lang­holts­hverfi eru ekki sam­liggjandi hverfi heldur klofin af einu stærsta græna svæði höfuð­borgarinnar. Fáar lausar lóðir eru á borgar­landi nema í út­jöðrum hverfisins og því ó­hjá­kvæmi­legt að með byggingu ung­linga­skóla er hverfinu koll­varpað með lengri göngu­fjar­lægðir fyrir hundruði ung­linga milli heimilis og skóla. Hætta er á að minni hvati yrði fyrir nem­endur að ganga og hjóla og meiri hvati fyrir for­eldra­skutl. Aukin bíla­um­ferð innan hverfis væri ó­um­flýjan­leg af þeim sökum, með til­heyrandi mengun og um­ferðar­töfum. Svið­myndir II og III ganga því þvert á yfir­lýstan vilja Reykja­víkur­borgar að grænum líf­stíl og hug­myndir um 15 mínútna hverfið.“

„Einungis svið­mynd I tekur til­lit til þeirra sátta sem ríkir nú þegar hjá í­búum um hverfa­skipu­lagið, verð­mæta sem fólgin er í skóla­brag, hefðum, mann­auði í hverjum skóla fyrir sig.“

„Fólkið í Laugar­dalnum er að stórum hluta fjöl­skyldu­fólk sem hefur kosið að búa á þeim stað í borginni þar sem ekki er safn­skóli á ung­linga­stigi. Þegar hafa heyrst sterk and­mæli vegna svið­mynda II og III sem munu valda ó­aftur­kræfum breytingum á hverfis­skipan skólanna. Skólarnir eru þunga­miðja í fé­lags­legu til­liti barnanna og því hafa for­eldrar valið heimili sem næst skólanum sem það kýs að senda börnin sín. Á­hyggjur af ung­lingum sem þurfa að ganga í gegnum Laugar­dalinn í myrkri er skiljan­legur en fá ekki mikið vægi nema í svið­mynd I. Breyting á skóla­skipu­lagi er á­hætta sem hefur vakið upp fleiri spurningar en það hefur hald­bær rök fyrir,“ skifar Ingi­björg.

„Sviðs­mynd I tekur til­lit til þeirra sátta og vilja sem ríkir hjá í­búum í hverfinu, þeim dýr­mætta arfi sem hver skóli býr yfir í skóla­brag, hefðum og mann­auði. Stjórnir for­eldra­fé­laganna neita af þeim sökum að taka þátt í til­rauna­kenndum breytingum í þeim eina til­gangi að búa til skjóta lausn upp­safnaðs vanda. Við viljum heild­stæðar lausnir fyrir skólanna þar sem tíma­settar á­ætlanir eru gerðar.

Kæru borgar­full­trúar - Við viljum að hverfis­skipu­lagið í Laugar­nes- og Lang­holts­hverfi verði hverfis­skipu­lag fyrir fólkið sem þar býr – ekki öfugt!“ skrifar Ingi­björg að lokum.