Móðir Guð­­mundar Felix slösuð eftir loft­belgja­­slys

Guð­laug Ingva­dóttir, móðir Guð­­­­mundar Felix Grétars­­­­sonar, sem þekktur er fyrir að gangast undir handa­á­græðslu í Frakk­landi, hnébrotnaði í dag er loftbelgur með hana og tíu aðra Íslendinga innanborðs brotlenti í Frakklandi. Slysið átti sér stað um klukkan hálf níu í morgun að staðartíma en karfa loftbelgsins kollvarpaðist við lendingu.

Guðlaug og önnur kona voru fluttar á Loche-sjúkrahúsið í nágrenni slysstaðarins. Voru meiðsli hennar minni en Guðlaugar.

Rann­­­sókn er hafin á til­­­drögum slyssins. Guð­­­mundur Felix og eigin­­­kona hans, Sylwia Grétars­­son Nowa­kowska, munu aðstoða móður hans í fram­haldinu.