Móðir Alberts tjáir sig um son sinn og barna­barn – þurfti að fylgjast með fæðingu sonar síns gegnum síma

„For­senda - Hugar­far. For­senda liðsins eða for­senda nýs líf," skrifar Krist­björg Inga­dóttir fyrrum lands­liðs­kona í knatt­spyrnu og móðir Alberts Guð­munds­sonar leik­manns Genoa í færslu sem hún birtir á Face­book síðu sinni í gær en Frétta­blaðið greinir frá.

Unnusta Alberts, Guð­laug Elísa deilir færslunni einnig á Insta­gram síðu sinni og vekur at­hygli á stöðu mála.

„At­vinnu­maðurinn er manneskja, manneskja eins og við öll en samt manneskja sem allir telja sig hafa rétt á að gagn­rýna," skrifar Krist­björg um stöðu mála.

Albert hefur ekki verið í lands­liðinu 9 mánuði eftir að Arnar Þór Viðars­son sakaði hann um sýna af sér slæmt hugar­far. Arnar Þór sagði svo í gær að Albert væri ekki til í að vera á for­sendum liðsins og væri sökum þess ekki í nýjasta lands­liðs­hópnum.

„Albert hefur í gegnum sinn at­vinnu­manna­feril verið það lán­samur að hafa hingað til verið með þjálfara sem hafa leið­beint honum. Veitt honum upp­byggi­lega gagn­rýni og fundið leið til þess að hjálpa honum að verða betri leik­maður betri manneskja. Slíkur stuðningur myndar gagn­kvæma virðingu og traust.“

„Það að hafa ein­hvern sem leið­beinir þér aftur á rétta braut þegar þú ert að­eins á villi­götum er ó­metan­legt vega­nesti.“

Krist­björg rekur svo í færslu sinni að Albert hafi að­eins hitt mánaðar gamalt barn sitt í hálfan sólar­hring. Hafi Albert þurft að horfa á fæðingu barnsins í gegnum síma en það fæddist á Ís­landi.

„En er for­senda nýs lífs einskis virði í at­vinnu­manna­um­hverfi. At­vinnu­maður færir oft miklar fórnir og er um­hverfið oft ó­manneskju­legt," skrifar Krist­björg og endar pistil sinn á þessum orðum.