Færri börn verða innrituð á leikskóla Reykjavíkurborgar næsta haust en meirihlutinn lofaði og blasir neyð við. Ástæðan er sögð vera meðal annars vegna framkvæmda og endurbóta á leikskólahúsnæði.
„Ég held að foreldrar hafi fengið áfall í gær. Öllu fögru hefur verið lofað og ekki staðið við neitt,“ segir Thelma Björk Wilson í samtali viðmbl.is.
Hún stofnaði Facebook hópinn leikskólamál í lamasessi í Reykjavík 2023.
Thelma á 7 mánaða barn sem hún gerir ráð fyrir að komist ekki á leikskóla á vegum borgarinnar.
„Það eru allir með fáránlegar sögur. Fólk er að flytja úr íbúðunum sínum og leigja þær á Airbnb. Flytja í foreldrahús til hafa efni á því að lifa,“ segir Thelma og vísar þar til fólks sem ekki hefur fengið dagvistun, hefur því ekki getað farið aftur að vinna eftir fæðingarorlof og er fyrir vikið algjörlega tekjulaust,“ segir Thelma við mbl.is.
Borgin lofaði að opna sjö leikskóla í ár og taka í notkun 850 leikskólapláss. Þá ætlaði hún einnig að bjóða öllum börnum frá 12 mánaða aldri pláss síðasta haust en ekkert af þessu hefur staðist.
„Maður spyr sig, hvað á fólk í alvörunni að gera? Líka bara fyrir komandi kynslóðir, þetta er mjög letjandi kerfi til barneigna. Þú sérð fyrir þér, ef þú eignast barn, að vera í einhverskonar óvissu orlofi um óákveðinn tíma og annar aðilinn á heimilinu verður þá kannski tekjulaus,“ segir Thelma.
„Ég velti fyrir mér hvað ég á að gera í haust og hvað ég á að segja mínum vinnuveitanda. Fólk missir bara vinnuna,“ bætur hún við.
Lestu viðtalið við Thelmu á mbl.is hér.