Móa: Lífið breyttist eftir skilnaðinn við Eyþór – Guðfræðin var himnasending

Söngkonan Móeiður Júníusdóttir er í einlægu viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins þar sem hún segir meðal annars frá því þegar hún tók ákvörðun um að hætta að syngja og stofna fjölskyldu fyrir um tveimur áratugum.

En gleðin var farin og því fannst Móu ótækt að halda áfram. „Ég kom heim og mig langaði hvorki að syngja né gera tónlist. Ég var 28 ára og komin með algjört ógeð á öllu sem þessu fylgdi. Ég hugsaði með mér að ég nennti ekki í enn eitt boðið,“ segir Móa. Hún vissi þó að hana langaði eins og frá unga aldri, að eignast fjölskyldu.

„Ég var svo heppin að verða fljótlega ófrísk og eignaðist eldri börnin mín með fyrrum eiginmanni mínum, með stuttu millibili. Ég held að það sé mín mesta gæfa og að ég hafi sloppið svolítið fyrir horn. Ég hefði aldrei orðið glöð né hamingjusöm ef ég hefði haldið áfram í því sem ég var að gera erlendis. Ég hefði aldrei þroskast sem manneskja enda var ég komin á ákveðna endastöð.“

Móðurhlutverkið átti vel við Móu en stuttu eftir að börnin komu í heiminn skildu þau Eyþór Arnalds eftir langt samband. „Líf mitt gjörbreyttist á flestum sviðum. Þegar ég hætti fyrst að syngja vissi ég ekkert hver ég var. Ég sem hafði alltaf verið mjög sterka sjálfsmynd enda alltaf haft röddina. Svo þegar hún var ekki lengur aðalatriðið sem maður speglaði sig í, allt það sem fólk hafði dáðst að, þá stóð bara eftir ég – svolítið á víðavangi.“

Móa hafði alltaf haft gaman af því að læra og verið mikill grúskari og hana langaði að finna þann hluta af sér aftur. Hún fór að skoða háskólanám og endaði á að skrá sig í guðfræði.

„Þar leið mér eins og fiski í vatni enda fjölbreytt nám og ofsalega gott tækifæri til að hugsa og spegla hlutina. Ég held að það hafi verið algjör himnasending fyrir mig að enda í lítilli deild með alls konar fólki og fá þessa innspýtingu. Ég sá fyrir mér að verða prestur.“

Móa kláraði guðfræðina og hóf doktorsnám í faginu en samhliða kláraði hún jafnframt uppeldis- og menntunarfræði og kennsluréttindi. „Ég hætti í doktorsnáminu því mig grunaði að það hefði leitt til þess að ég yrði bara sérvitringur úti í horni,“ segir hún og hlær. Móa varð ekki prestur en réði sig sem grunnskólakennara fyrir sjö árum og fann strax að þar ætti hún heima. „Ég hef mikinn áhuga á menntakerfinu sem ég tel eitt það mikilvægasta í okkar samfélagi. Ég hef skoðað vel trúaruppeldi eða andlegt uppeldi og trúarbragðafræði. Þannig hef ég haldið tengslum við þetta fræðagrúsk mitt,“ segir Móa sem jafnframt kennir íslensku og finnst það bæði skemmtilegt og verðugt verkefni.