Á hluthafafundi Festi hf. sem fram fer þann 14. júlí verða tvö mál á dagskrá. Annars vegar stjórnarkjör, og hins vegar tillaga um nafnabreytingu á félaginu. Lagt hefur verið til að nafninu verði breytt úr Festi í Sundrungu.
Tillagan um nafnbreytinguna gefur til kynna að sundrung sé innan félagsins og því megi búast við róstursömum hluthafafundi.
Þetta kemur fram í auglýsingu um hluthafafundinn í Fréttablaðinu í dag, en sami miðill fjallar einnig um málið í blaðinu, en þar segir:
„Ágreiningur er milli stjórnar og margra hluthafa um starfslok forstjórans Eggerts Þórs Kristóferssonar í byrjun síðasta mánaðar og er það ástæða þess að boðað er til fundarins.
Tilnefninganefnd hefur tilnefnt níu í stjórnina, þar á meðal alla sitjandi stjórnarmenn. Aðeins fimm sitja í stjórninni og því er ljóst að ekki fá allir stjórnarsæti sem vilja.“
Þá er tekið fram að heimildarmenn Fréttablaðsins eigi von á að stjórnin verði endurnýjuð að hluta eða öllu leyti.