„Dæmið af ofsóknum Sjálfstæðismanna á hendur Þorvaldi Gylfasyni sýnir í hnotskurn þann vanda sem við er að etja í opinberri umræðu hér á landi, jafnt í fjölmiðlum sem í akademíu,“ segir Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Guðmundur Andri tjáir sig þarna um frétt Kjarnans frá því í morgun en vefurinn greindi frá því að fjármála- og efnahagsráðuneytið hefði lagst gegn því að Þorvaldur, sem er prófessor í hagfræði, yrði ráðinn ritstjóri fræðatímaritsins Nordic Economic Policy Review.
Í frétt Kjarnans kom fram að starfsmaður ráðuneytisins hefði komið þeim skilaboðum til fjármálaráðuneyta á Norðurlöndunum og til Norrænu ráðherranefndarinnar að ráðuneytið gæti ekki stutt það að Þorvaldur yrði ráðinn. Var ástæðan sögð sú að hann væri of pólitískt virkur og enn formaður stjórnmálaafls.
Þetta er rangt því Þorvaldur hefur ekki gegnt trúnaðarstörfum fyrir stjórnmálaflokk síðan 2013, en það ár leiddi hann Lýðræðisvaktina í Alþingiskosningunum. Flokkurinn kom ekki manni að í kosningunum. Sagði Þorvaldur að þetta hefði komið í veg fyrir að hann fengi ritstjórastarfið en ráðning hans var afturkölluð í nóvember síðastliðnum.
Guðmundur Andri segir að þarna sé beinlínis verið að refsa Þorvaldi fyrir að tjá sig skilmerkilega og óttalaust um þjóðmál í ræðu og riti.
„Slíkt verður ekki liðið og ná ofsóknirnar út fyrir landsteinana; Þorvaldur hefur getið sér gott orð sem hagfræðingur á alþjóðavísu og býðst því starf, sem Flokkurinn hér heima kemur svo í veg fyrir að hann fái. Ekki að furða þó að fólk striti við að þegja hér á landi, hafi það eitthvað fram að færa sem kann að koma illa við Flokkinn.“