Mjög ó­sátt við orð Bjarna: „Mikið of­boðs­lega er þetta lé­legt“

Þau um­mæli Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra að fjár­magn hafi ekki fylgt ný­sam­þykktu laga­frum­varpi um gjald­frjálsa sál­fræði­þjónustu hafa vakið tals­verða at­hygli. Um er að ræða mikið hags­muna­mál fyrir þá sem nýta sér sál­fræði­þjónustu en breytingin felur í sér að þjónustan falli undir greiðslu­þátt­töku­kerfi Sjúkra­trygginga Ís­lands.

Bjarni sagði að Svan­dísi Svavars­dóttur heil­brigðis­ráð­herra væri heimilt, ef hún fyndi peninga í þeim heildar­heimildum sem hún hefur, til að gera um­ræddan samning. Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylkingarinnar, gagn­rýnir um­mæli Bjarna harð­lega.

„Mikið of­boðs­lega er þetta lé­legt. Svan­dís er ekki fjár­mála­ráð­herra sem ber meðal annars að afla tekna. Henni ber að fram­fylgja þeim lögum sem undir hana heyra og ég treysti henni og hvet hana til að klára málið og mun styðja hennar bar­áttu fyrir fjár­veitingu í mála­flokkinn,“ segir hún í færslu á Face­book-síðu sinni.

Frétta­blaðið ræddi við Tryggva Guð­jón Inga­son, for­mann Sál­fræðinga­fé­lags Ís­lands, í gær­kvöldi sem kvaðst vera hissa á um­mælum Bjarna.

„Það kemur mér mjög á ó­vart ef það er sýn hans á málinu,“ sagði Tryggvi um það að ekkert fjár­magn liggi að baki ný­sam­þykktu frum­varpinu.

„Allir þing­menn sem voru við­staddir sam­þykktu breytinguna. Þannig það kæmi mér mjög á ó­vart ef það er ekki búið að gera ráð fyrir fjár­magni fyrir þetta.“