Reglugerð um niðurgreiðslu kostnaðar sjúklinga vegna sérgreinalækninga rann út vegna mistaka í morgun þar sem það gleymdist að endurnýja hana.
Þetta kemur fram í frétt RÚV en þar segir að mistökin verða leiðrétt seinna í dag en margir sjúklingar þurftu að greiða fullt gjald fyrir þjónustu í morgun.
Samkvæmt RÚV sendu sérgreinlæknastofur póst á alla sjúklinga sína í morgun og þeim tilkynnt að þeir yrðu að greiða fullt gjald fyrir þjónustu. Heilbrigðisyfirvöld voru þar sögð bera alla ábyrgð á ástandinu.
Í pósti einnar læknastofu til sinna sjúklinga segir: „Frá og með 1. september 2022 er því engin heimild í lögum eða reglugerðum fyrir því að SÍ greiði hluta kostnaðar sjúklinga beint til lækna til hagræðis fyrir sjúklinga og SÍ. Því er okkur nauðugur einn kostur að taka fullt gjald af þér fyrir komuna í dag eins og gert er ráð fyrir í lögum um Sjúkratryggingar þegar ekki er til staðar samningur."
Heilbrigðisráðuneytið segir að mannleg mistök hafi valdið því að reglugerðin var ekki endurnýjuð.
Sjúkratryggingar Íslands munu koma til móts við þá sem urðu að borga fullt gjald fyrir sérgreinalæknaþjónustu í morgun.
Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisráðherra hafa ekki samið við sérgreinalækna um þátttöku í kostnaði sjúklinga frá árinu 2018 og þess í stað hafa verið gefnar út reglugerðir þar um.