Misstu af utanlandsferðinni vegna mistaka læknis á Læknavaktinni

Mistök urðu til þess að sjö einstaklingar, sem hugðust fara til Danmerkur á mánudag, fengu ekki að fara um borð í vélina.

Greint var frá málinu í fréttum RÚV í dag en fólkið hafði farið á Læknavaktina til að fá vottorð um neikvætt kórónuveirupróf. Þau fengu það afhent en mistök læknis urðu til þess að röng dagsetning var skráð á það. Af þeim sökum var fólkinu ekki hleypt um borð í vélina. Aðeins eitt flug var úr landi á mánudag og var það morgunflug með Icelandair til Kaupmannahafnar sem fyrr segir.

Danmörk setur 24 klukkustunda mörk á aldur neikvæðra kórónuveiruprófa og segir Gunnlaugur Sigurjónsson, framkvæmdastjóri lækninga á Læknavaktinni, að vottorðið hafi litið út fyrir að vera eldra.

Gunnlaugur sagði í fréttum RÚV að málið væri í skoðun. Sambærilegt mál hafi þó ekki komið upp áður.