Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta í dag og komu meðal annars þjófnaðarmál við sögu. Öryggisvörður í miðborg Reykjavíkur hafði samband við lögreglu snemma í morgun vegna manns sem vann skemmdir á hraðbanka.
Í skeyti frá lögreglu kemur fram að maðurinn hafi játað að hafa misst stjórn á sér þegar hraðbankinn gleypti kortið hans. Ekki kemur fram í tilkynningu lögreglu hvort um miklar skemmdir hafi verið að ræða.
Þá fékk lögregla nokkrar tilkynningar um ölvaða einstaklinga í miðborg Reykjavíkur í morgun. Í flestum tilvikum var fólkið farið er lögregla kom á staðinn eða engin þörf var á afskiptum lögreglu.
Tvö þjófnaðarmál komu upp matvöruverslunum í dag, annars vegar í Breiðholti og hins vegar í Árbæ. Ekki kemur fram hverju var stolið en sá sem staðinn var að þjófnaði í Breiðholti viðurkenndi brot sitt og var látinn laus eftir skýrslutöku.