Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur, segir algengan misskilning hjá Bjarna og félögum í ríkisstjórn að í siðuðum lýðræðisríkjum megi þau sem fá nóg af atkvæðum í kosningum bara fara með völd eins og þeim sýnist.
Viktor rekur mál sitt í þræði á samfélagsmiðlinum Twitter. Hann segir að nútímalýðræði gangi ekki út á óheft meirihlutaræði. „(Hvað þá óheft völd þeirra sem fá um fjórðung atkvæða); réttindi minnihluta, leikreglur réttarríkisins og almennt siðferði stjórnsýslu og stjórnmála skipta þar höfuðmáli líka.“
„Þegar Bjarni var kominn út í horn á fundi fjárlaganefndar, vitandi að hann gat ekki réttlætt gjörðir sínar út frá siðferði eða leikreglum lýðræðisríkja, þá greip hann í einu málsvörnina sem valdhafar í "flawed democracies" eiga eftir: hann fékk nú samt fleiri atkvæði en hin,“ skrifar Viktor.
Vísar hann þá næst til orða Bjarna af fundinum:
„Nú gengum við til kosninga í september síðastliðinn og það var einn þingmaður sem fór með fleiri atkvæði á bak við sig en nokkur annar, sem að fékk kosningu í þeim alþingiskosningum, og það var sá sem þú ert að tala við núna.“
Að síðustu segir Viktor: „Þetta hefur auðvitað því miður lengi verið viðhorf hans og flokksins hans til meðferðar ríkisvalds: ef við náum nógu mörgum atkvæðum og komumst í valdastólana megum við gera það sem við viljum.“