Pamela B. Baldwin, eftirlaunaþegi í Baton Rouge í Louisiana í Bandaríkjunum, pantaði sér ferð með skemmtiferðaskipi til Íslands í júní síðastliðnum.
Pamela og eiginmaður hennar höfðu fengið bóluefni gegn veirunni og á þeim tíma voru einu skilyrðin sem farþegar þurftu að uppfylla að skila bólusetningarvottorði til að komast með.
Í lesandabréfi sem birt er á vef The Advocate bendir Pamela á að forsendur hafi breyst þegar Delta-afbrigðið fór að láta til sín taka í sumar. Þá hafi þau þurft að skila neikvæðu PCR-prófi til að komast með.
„Við fórum í PCR-próf á laugardegi vegna ferðarinnar sem átti að byrja á miðvikudag. Við greindumst jákvæð. Við vorum og erum einkennalaus, þó við höfum bæði reynst jákvæð. Bólusetningin hefur augljóslega gert sitt gagn – gert það sem hún átti að gera sem er að koma í veg fyrir veikindi.“
Pamela segir að góðu fréttirnar séu því þær að þau hjónin séu ekki veik en slæmu fréttirnar séu þær að þau komast ekki í ferðina.
„Þarna úti er fólk eins og við. Bólusettir einstaklingar sem eru hugsanlega með veiruna en einkennalaust. Margir þeirra fara ekki í próf en á sama tíma breiðist Delta-afbrigðið, jafnvel meðal þeirra sem eru bólusettir,“ segir Pamela sem brýnir fyrir fólki að nota grímur og þiggja bóluefni gegn veirunni. Bóluefnið geti augljóslega komið í veg fyrir veikindi vegna Covid-19.