Inga Bryndís Árnadóttir, fræðslu- og hagsmunafulltrúi Krafts, segir að krabbameinsmeðferð getur haft veruleg áhrif á tannheilsu fólks og er það gífurlega kostnaðarsamt.
„Þegar þú greinist með krabbamein er ekki það fyrsta sem þú hugsar að fara til tannlæknis til að meta tannheilsu þína en sú heimsókn getur hins vegar sparað þér hundruð þúsunda síðar meir,“ skrifar Inga í aðsendri grein á Vísi.
„Afleiðingar lyfja- og geislameðferðar geta valdið breytingum á slímhúð munns og munnvatnskirtla. Þetta getur raskað heilbrigðu jafnvægi baktería og leitt til munnsára, sýkinga, tannskemmda og munnþurrks. Oft koma þessar afleiðingar jafnvel ekki fram fyrr en löngu eftir að krabbameinsmeðferð lýkur.“
Um síðustu áramót urðu breytingar á reglugerð nr. 451/2013 er varðar þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar sem tengjast sjúkdómum og var greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga (SÍ) hækkuð í 80% auk þess sem gjaldskrá var uppfærð sem var orðið löngu tímabært.
„Félagsmaður okkar í Krafti þarf til dæmis að greiða úr eigin vasa 1,5 milljón króna þrátt fyrir að viðkomandi fái fulla niðurgreiðslu frá SÍ vegna tannskemmda sem urðu til vegna aukaverkana í lyfjameðferð. Þetta stafar af misræmi í verðskrá Sjúkratrygginga og verðskrá tannlækna. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hversu mikill kostnaður það er fyrir ungan einstakling með fjölskyldu og börn á framfæri.“
Hægt er að lesa grein Ingu í heild sinni hér.