Davíð Þór Jónsson, prestur í Laugarneskirkju, segir sögu sína í áhugaverðu viðtali hjá Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í útvarpsþættinum Segðu mér á Rás 1.Þar rifjar hann það upp hvernig þjóðfélagið var þegar hann ólst upp.
Davíð segir að þegar hann hafi alist upp hafi ekki verið neitt rými til að skera sig úr fjöldanum. „Það var miskunnarlaust gefið út veiðileyfi á hvern sem vogaði sér að væri pínulítið öðruvísi og halda að hann væri eitthvað,“ segir Davíð.
Hann segir það hafa verið hin nversta glæp. „Öll bælingin og kúgunin. Hvað þetta var svarthvítt og leiðinlegt,“ segir hann og heldur áfram:
„Jafnaldri minn dúkkar upp í sjónvarpi og syngur lag og líf hans er eyðilagt af jafnöldrum því allt í einu er hann orðinn eitthvað.“
Fékk ólíkar viðtökur í Laugarneskirkju
Líkt og flestir vita er Davíð Þór þjóðþekktur grínisti og þekktur fyrir leik sinn í Radíusbræðrum. Hann segir það hafa komið fyrir að fólk hafi afþakkað þjónustu hans vegna þessa.
Þó hafi komið fyrir að einhverjir hafi leitað til hans einmitt vegna þess hver hann er:
„Fólk hefur sagt við mig eitthvað á borð við: Ekki hélt ég að ég ætti eftir að þurfa eða vilja koma að ræða mín mál, líðan og tilfinningar við prest - en fyrst það ert þú,“ segir hann.
„Ég held að persóna mín laði fleiri að en hún fælir frá. Kannski af því fólk veit að ég á mér sögu, sem er auðvelt að gúgla og hún er ekki öll falleg og til fyrirmyndar,“ segir Davíð.
„En ég held að fólki þyki það í raun og veru traustvekjandi þegar um presta er að ræða. Þau eru ekki að fara að mæta einhverri fordæmingu eða siðferðislegu yfirlæti. Ég hef kannski ekki alltaf verið ímynd hins siðprúða borgara.“