Mínútu seint fundar­boð reyndist ó­lög­mætt | Meiri­hlutinn kallar það „titt­linga­skít“

Frið­rik Sigur­björns­son, bæjar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins í Hvera­gerðis­bæ, greinir á Face­book síðu sinni frá ó­lög­legum fundi bæjar­stjórnar Hvera­gerðis­bæjar.

„Fundar­boð barst bæjar­full­trúum og vara­mönnum þeirra kl. 17:01 þriðju­daginn 12. júlí 2022 fyrir bæjar­stjórnar­fund sem halda átti 17:00 fimmtu­daginn 14. júlí,“ skrifar Frið­rik.

Fundurinn er ó­lög­mætur vegna þess að sveitar­stjórnar­lög kveða á um að fundar­boð skuli berast að minnsta kosti 48 klukku­stundum fyrir fund. Í þessu til­felli voru einungis 47 klukku­stundir og 59 mínútur frá fundar­boði að fundinum sjálfum.

„Í fyrsta skipti í meira en 16 ár þurfti að slíta bæjar­stjórnar­fundi og boða til nýs fundar þar sem fundar­boð barst ekki með lög­mætum fyrir­vara,“ skrifar Frið­rik, en síðustu sex­tán ár hefur Sjálf­stæðis­flokkurinn farið með völd í Hvera­gerði. Það breyttist eftir kosningarnar á þessu ári þegar Fram­sókn og O-listinn mynduðu meiri­hluta.

Meiri­hlutinn kallaði þetta „titt­linga­skít“ og Frið­rik segir að það kunni að vera að það sér rétt. „En lög eru lög,“ skrifar hann.

„Við í D-listanum erum öll af vilja gerð að vinna með Fram­sókn og O-listanum að góðum málum en við viljum einnig að við­höfð verði fag­leg og góð vinnu­brögð næstu 4 árin líkt og hefur verið síðustu 16 ár,“ skrifar Frið­rik.

Frið­rik vill að boðaður sé nýr fundur með lög­mætum hætti.

Sjá má skjá­skot af Face­book færslu hans hér að neðan:

Mynd/Skjáskot