Lesley Agustsson, móðir Viktoríu Hrannar Axelsdóttur, hélt góðgerðarviðburð í Bretlandi á föstudag til minningar um dóttur sína sem lést vegna sjálfsvígs á Íslandi árið 2020.
Fréttablaðið greinir frá málinu, en í frétt miðilsins er haft eftir Lesley að á viðburðinum hafi 250 manns mætt og að tekist hafi að safna 4000 pundum, sem jafngildir tæplega 650 þúsund krónum. Ágóðin mun renna til góðgerðarmála í Bretlandi og á Íslandi.
Í samtali við staðarmiðilinn The Shields Gazette á dögunum tjáði Lesley sig um dóttur sína og áfallið. Hún segist minnast þess á hverjum einasta degi þegar hún fékk fregnirnar um andlát dóttur sinnar.„Viktoría var ein af þessum stelpum sem var gríðarlega falleg að utan sem innan.“ er haft eftir Lesley.
„Hún var alltaf að segja mér að við vorum sálufélagar. Við vorum svo nánar mæðgur. En henni leið eins og eitthvað væri að angra sig, og hún gat hvorki sagt mér, eða vinum sínum frá því.“ segir Lesley sem biðlar til fólks að segja sínum nánustu frá áhyggjum sínum.
Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðisins.