Bæjarráð Garðabæjar hefur samþykkt að greiða 60 milljóna króna til viðbótar vegna framkvæmda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, sagði hins vegar í janúar að hann væri „fullviss“ að ekki meiri kostnaður myndi lenda á bænum vegna framkvæmdanna. Hljóðaði tilboð Íslenskra aðalverktakar hf. upp á 4,2 milljarða króna og hófust framkvæmdir í fyrra.
„Garðabær fór í allsherjarútboð vegna uppbyggingarinnar sem þýðir að öll hönnun og undirbúningsvinna var í höndum verktaka og því eigum við ekki von á því að verðið hækki,“ sagði Gunnar í janúar.
ÍAV höfðu farið fram á 364 milljóna króna viðbótarframlag. Fréttablaðiðgreinir nú frá því að Garðabær sé búinn að gera samkomulag við ÍAV um framkvæmdina og mun sveitarfélagið greiða 60 milljónir. 228 milljóna króna viðbótarkostnaður fer svo fyrir gerðardóm.
Bæjarráð Garðabæjar samþykkti samkomulagið með fjórum atkvæðum gegn einu á fundi sínum. Mun Gunnar undirrita það eftir samþykki bæjarstjórnar.