Minnist læknisins sem framkvæmdi fyrstu handa ágræðsluna: „Hann sagði mér að berjast, berjast, berjast“

Guðmundur Felix Grétarsson minnist í dag læknis sem féll frá síðastliðinn laugardag en læknirinn, Jean Michel-Dubernard, leiddi teymið sem tókst í fyrsta sinn árið 1998 að græða hendur á manneskju.

Líkt og flestum er kunnugt voru tveir handleggir græddir á Guðmund Felix fyrr á árinu en hann missti báða handleggi í vinnuslysi árið 1998.

Í færslu sinni á Facebook minnist Guðmundur Felix þess þegar hann hitti Michel-Dubernard þar sem hann dvaldi á hóteli í Reykjavík í maí 2007.

„Ég spurði hann hvað honum fyndist um að kannski væri einhvern daginn hægt að græða heila handleggi á mann,“ lýsir Guðmundur í færslunni. „Hann sagðist ekki vita það en hvað sem svarið væri, þá myndi hann vilja styðja við það á vísindalegan hátt. Framhaldið þekkja allir.“

„Seinasta skiptið sem ég sá hann var tveimur dögum fyrir aðgerðina mína. Hann hafði tekið lest frá heimilinu sínu í París bara til að hitta mig og hann sagði mér að „berjast, berjast, berjast.“ Herra Dubernard, það er einmitt það sem ég mun gera. Hvíldu í friði.“