Minnist bróður síns sem lést eftir líkamsárás: „Alltaf varstu til­búinn til að hjálpa öllum“

Maðurinn sem lést á Land­spítalanum í gær af á­verkum sem hann hlaut fyrir utan heimili sitt á föstu­dags­morgun hét Daníel Ei­ríks­son og var fæddur árið 1990. Þrír voru hand­teknir í gær og situr einn í gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar á and­látinu. Málið er rann­sakað sem mann­dráp.

Systir Daníels, Guð­ný Sig­ríður Ei­ríks­dóttir, minnist bróður síns í hug­ljúfri kveðju á Face­book í dag. Hún gaf Fréttablaðinu og Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta færsluna:

Elsku besti litli bróðir minn.
Ég vil ekki trúa að þú sért farinn frá okkur. Þetta er svo ósanngjarnt og óraunverulegt... Þú áttir þetta ekki skilið.
Sakna þín svo mikið strax.

Elsku Daníel minn þú máttir ekkert aumt sjá & alltaf varstu tilbúinn til að hjálpa öllum.
Það kom þér stundum í vandræði og þú mættir alltaf ósigrandi til leiks. Þú varst svo hraustur með óteljandi líf! Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu þínu. Hjartað þitt vildi ekki hætta að slá. Þú þráðir svo heitt að lifa eðlilegu lífi elsku Daníel minn og stóðst þig eins og hetja. Þú varst klettur fyrir svo marga síðustu mánuði.
Margir sem sáu ekki sólina fyrir þér. Ég var svo stollt af þér yndið mitt.

Það var æðislegt að sjá þig svona hamingjusaman og þú blómstraðir með Liljunni þinni Þið áttuð svo fallegt samband og voruð algjörar samlokur. Þú varst alltaf til staðar fyrir hana og son hennar.

Ég ligg alveg dofin upp í rúmi og skoða myndir af þér í símanum mínum.
Ó hvað við áttum margar góðar minningar saman. Það var alltaf stutt í grínið þegar við vorum saman. Sakna þess að þurfa skutla þér útum allt, kíkja í lunch og fá okkur kaffibolla. Allar Florida ferðirnar með mömmu & pabba eru efst í huga. Við vorum með svo mörg framtíðar plön saman elsku Daníel minn.
Draumurinn þinn var að verða ríkur business kall.

Svo erfitt að hugsa til þess að ég muni ekki getað hringt í þig lengur. En ég veit að þú vakir yfir okkur & heyrir í okkur.

Það verður erfiðast í heimi að útskýra fyrir Gabríelu & Benjamín að þú sért farinn upp til himna. Þau munu sakna þín svo mikið. Þau litu svo upp til þín stóri besti uppáhalds frændi.
Þú elskaðir þau svo mikið & þau elskuðu þig.

Er svo þakklát fyrir fallegu kveðjustundina sem við áttum með þér.

Hvíldu í friði elsku litli bróðir minn. Elska þig að eilífu.

Elsku besti litli bróðir minn ❤️ Ég vil ekki trúa að þú sért farinn frá okkur 😢 Þetta er svo ósanngjarnt og...

Posted by Guðný Sigríður Eiríksdóttir on Sunday, 4 April 2021