Minnist aur­skriðanna á Seyðis­firði: „Ég skil ekki enn þá hvernig ég lifði þetta af“

Jafet Sig­finns­son sem horfði upp í fjalls­hlíðina úr eld­hús­glugganum á heimili for­eldra sinna á­samt bróður sínum þegar hann sá fjallið springa og aur­skriðuna stefna beint á húsið árið 2020 skilur enn ekki í dag hvernig hann lifði þetta af.

Í við­tali við Frétta­blaðið í desember 2020 sagði Jafet að hann og faðir hans Sig­finnur forðuðu sér, á­samt hundinum Dakota, inn í blóma­skála og biðu eftir að höggið kæmi á húsið.

Þeir héldu báðir að þetta væri þetta væri þeirra síðasta stund.

„Ég skil ekki enþá hvernig ég lifði þetta af. Bara meikar ekkert sens. Ég var að horfa beint upp í fjall þegar skriðan byrjaði og var fljótur að fatta að þetta væru síðustu sekúndurnar mínar á lífi af því ég sá enga aðra mögu­lega út­komu,“ skrifar Jafet á twitter í dag og deilir mynd af húsinu sínu sem slapp með ó­trú­legum hætti.