Minnast sonar síns sem fórst í Þing­valla­vatni: „Hann var ný­búinn að sjá norður­ljósin í fyrsta skipti“

Föl­skylda tuttugu tveggja ára gamla hjól­bretta­kappans Josh Neuman, sem fórst á­samt þremur öðrum í flug­slysinu í Þing­valla­vatni, minnast hans á sam­fé­lags­miðlum í dag.

Þau segja hann hafi látist við að gera það sem hann elskaði. Skömmu fyrir slysið hafi hann átt einn hamingju­samasta dag lífs síns.

„Hann var ný­búinn að sjá norðu­ljósin á Ís­landi í fyrsta skipti og lýsti þeirri upp­lifun sem hamingju­samasta deginum í lífi sínu,“ segir í færslu fjöl­skyldunnar.

Fjöl­skylda Neuman, for­eldrar hans Kristin og Chris og bróðir hans Daniel, skrifuðu minningar­orðin á Insta­gram síðu Josh. Hægt er að lesa til­kynninguna í heild sinni hér að neðan með því að fletta til hægri.

Þau segja að Josh hafi lifað lífinu til hins ítrasta og notið hverrar stundar. Hann hafi ávalt trúað því að ein manneskja gæti haft áhrif á heiminn og heitir fjölskyldan að halda minningu hans á lofti um ókomna tíð. Hann hafi lifað eftir þeirri speki að við gætum öll orðið betri manneskjur og vildi alltaf hjálpa öðrum þegar hann gæti.

Neuman var sam­fé­lags­miðla­stjarna og fylgdu 1,2 milljón manns honum á Youtu­be. Þá voru um 170 þúsund manns sem fylgdu honum á Insta­gram.

Á henni hefur hann birt myndbönd af sjálfum sér renna á hjólabretti. Myndbönd hans eru mörg hver gríðarlega vinsæl, en áhorfstölurnar hafa oft náð upp í nokkra tugi milljóna og í eitt skipti upp fyrir hundrað milljónir.