Minnast Jóns með hlýjum orðum: „Nú er það okkar að halda hugmyndum hans á lofti“

Jón E. Bernódusson, verkfræðingur hjá Samgöngustofu, var jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag. Jón lést á Landspítalanum þann 22. september síðastliðinn, 69 ára að aldri. Fjölmargir minnast Jóns í minningargreinum í Morgunblaðinu í dag og eru ráðherrar og fyrrverandi þingmenn meðal annars í þeim hópi.

Jón varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1974 og nam svo skipaverkfræði í Þýskalandi. Að því námi loknu stundaði hann framhaldsnám og rannsóknir í straumfræði í Berlín.

Árið 1998 var hann ráðinn til Siglingamálastofnunar og var sérsvið hans orkuskipti í skipum. Eftir að Siglingamálastofnun var sameinuð Samgöngustofu 2013 starfaði hann þar til æviloka. Síðustu árin lagði hann áherslu á rannsóknir á nýtingu repju til framleiðslu lífrænnar olíu til manneldis og sem eldsneyti.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, fer fögrum orðum um Jón.

„Sæll, Jón Bernódusson heiti ég og er frá Vestmannaeyjum.“ Þannig kynnti Jón sig iðulega og mér varð þegar ljóst að hér var á Jón Bernódusson ferð maður sem vildi láta til sín taka og gera samfélaginu gagn.“

Kynni þeirra hófust þegar Sigurður Ingi var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Jón kynnti fyrir honum rannsóknir sínar.

„Þar fór maður sem var með skýra sýn á hringrásarkerfið og hvernig hægt yrði að nýta orkujurtir á sjálfbæran hátt. Annars vegar til að takast á við loftslagsvandann með ræktun repju til að framleiða lífolíu og hins vegar til draga úr þörf á innflutningi á fóðri með tilheyrandi eflingu á fæðuöryggi landsins. Eða eins og Jón orðaði svo eftirminnilega að þetta snýst um að finna eldsneyti í staðinn fyrir jarðefnaolíu, eldsneyti sem við getum framleitt sjálf og verið óháð innflutningi. Það lá því beinast við þegar ég tók við embætti samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að Jón gegndi lykilhlutverki í starfshópi með fleiri góðum sérfræðingum við að semja skýrslu um ræktun orkujurta til að framleiða lífolíu og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Við fengum skýrsluna í hendur á Þorvaldseyri aðeins nokkrum dögum áður en Jón lést. Ég fann sterkt hvað verkefnið átti hug hans allan, hvernig hann fékk aðra til liðs við sig og hversu mikil áhrif hann hafði á samferðafólk sitt. Hann var tilbúinn til að leggja sitt af mörkum til að bæta og auðga samfélagið. Þannig maður var Jón Bernódusson. Nú er það okkar að halda áfram, halda hugmyndum hans á lofti og gera þær að veruleika.“