Englendingurinn Gordon Lee, sem þjálfaði karlalið KR í knattspyrnu um þriggja ára skeið, er látinn, 87 ára að aldri. Enska Knattspyrnufélagið Everton greindi frá andlátinu í dag en Lee var einnig stjóri Everton, Newcastle og Blackburn á Englandi.
DV ákvað að rifja upp og minnast Lee en hann vakti mikla athygli þegar hann starfaði á Íslandi á árunum 1985- 1987.
„Frægasti þjálfari sem hefur verið ráðinn til starfa á Íslandi,“ segir í fyrirsögn DV frá árinu 1984 þegar Lee var ráðinn til starfa.
Í umfjöllun DV segir einnig. „Gordon Lee, fyrrum framkvæmdastjóri Newcastle og Everton, var ráðinn þjálfari KR-liðsins í knattspyrnu í gær eftir að hann var búinn að kanna aðstæður hjá vesturbæjarliðinu og ræða við leikmenn þess. Það er óhætt að segja að Gordon Lee, sé einn kunnasti þjálfari, sem hefur verið ráðinn til íslands, en hann er fyrrum leikmaður hjá Aston Villa eins og Ian Ross hjá Valsmönnum.“
Hægt er að lesa umfjöllun DV í heild sinni hér.