Minnast Eiríks með hlýhug: „Við starfsfólk RÚV erum harmi slegin“

Fjölmargir hafa minnst útvarpsmannsins og rithöfundarins Eiríks Guðmundssonar á samfélagsmiðlum með hlýjum orðum. Greint var frá andláti hans í hádeginu en Eiríkur var 52 ára, fæddur 28. september 1969.

Eiríkur var í uppáhaldi hjá mörgun enda frábær útvarpsmaður og í miklum metum hjá vinum og samstarfsfólki. Eiríkur starfaði lengst af við dagskrárgerð á sviði menningar hjá Rás 1 og hafði meðal annars umsjón með Víðsjá og Lestinni. Eiríkur var einnig hæfileikaríkur rithöfundur og liggja eftir hann nokkur skáldverk.

„Við starfsfólk RÚV erum harmi slegin að heyra fréttir af föllnum félaga. Kolla vinkona mín segir að Eiríkur hafi verið svo byronískur og sjarmerandi, honum hefði fundist það spaugilegt, en hann var líka sérlega skemmtilegur, alúðlegur, gáfaður, fallegur, örvandi félagskapur – jú og rithöfundur, pistlahöfundur og einn okkar allrabesti útvarpsmaður,“ segir Egill Helgason fjölmiðlamaður á Facebook-síðu sinni og bætir við:

„Í dag fellir maður tár yfir dauða Eiríks en maður finnur líka fullt af góðum minningum sem veita smá huggun og kalla jafnvel fram bros. Farðu vel kæri.“

Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður Vísis, var og er dyggur aðdáandi Eiríks.

„Hann tók viðtal við mig, um "góða fólkið" í Víðsjá á sínum tíma og 2018 ég ræddi svo við Eirík í tilefni af nýútkominni skáldsögu hans þá. Eiríkur var með meiru einn eftirtektarverðasti útvarpsmaður sinnar tíðar og óheyrilega sorglegt að sjá á bak honum,“ segir hann.

Herdís Þorgeirsdóttir, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, segir að Eiríkur hafi verið einstakur. „Tilfinningavera og svo fallega þenkjandi,“ segir hún meðal annars og bætir við: „Far vel kæri Eiríkur og þakka þér fyrir allt.“

Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á RÚV til fjölmargra ára, segir á Facebook-síðu sinni: „Eiríkur Guðmundsson útvarpslistamaður og skáld er látinn. Það er ömurlegt. Ég sendi hér öllum hans vinum innilegar samúðarkveðjur.“

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, segir á Twitter að Eiríkur hafi bæði verið framúrskarandi útvarpsmaður og frábær vinnufélagi. „Mér fannst hann hluti af nýrri kynslóð „menningarvita“. Brosmildur, strigaskóaður, með áhuga á fótbolta og söng manna mest á karókíkvöldum. Hans verður sárt saknað.“