Hin dansk-íslenska Edda Sveinsdóttir lést fyrr á þessu en hún var brautryðjandi í tölvunarfræði á heimsvísu. Björn Már Ólafsson, lögfræðingur sem býr og starfar í Danmörku, minnist hennar á Twitter í dag og segir synd að íslenskir fjölmiðlar hafa ekki fjallað um hana þar sem háskólar í Danmörku hafa minnst hennar.
Edda var brautryðjandi í tölvunarfræði. Hún varð fyrsta danska konan til að verða tölvunarfræðingur en lést í apríl á þessu ári eftir margra ára baráttu við Alzheimer.
Edda Fæddist í Reykjavík 1936, dóttir Sveins Bergsveinssonar prófessor og danska arkitektsinsAnne Marie Østergaard. Fluttist þriggja ára til Danmerkur með móður sinni. Hún kynntist verðandi eiginmanni sínum í framhaldsskóla. Sá hét Niels Alexander Lassen og átti eftir að verða heimsfrægur á sviði geislalækninga og ísótópagreiningar, skrifar Björn.
Edda lærði stærðfræði og eðlisfræði við Kaupmannahafnarháskóla og sérhæfði sig í tölfræðigreiningu. Hún hóf svo störf við stærðfræðideild Kaupmannahafnarháskóla þar sem hún vann á GIER reiknivélina – önnur tölvan í Danmörku á þessum tíma.
Ég rak nýverið augun í þessa dönsku minningargrein um 🇩🇰🇮🇸 Eddu Sveinsdóttur. Ég hafði aldrei heyrt hennar getið og var mjög hrifinn af hennar afrekum. Ég hef ekki séð hennar minnst í íslenskum fjölmiðlum og því tilvalið að stuttlega yfir sögu & afrek hérhttps://t.co/S3IiJ4y2AB
— Björn Már Ólafsson (@bjornmaro) June 16, 2022
„Hún fékk þar áhuga á tölvum og lærði forritun við Tækniháskólann í Danmörku og varð þar með fyrsti kvenkyns tölvunarfræðingurinn í sögu Danmerkur.
Á heimasíðu Kaupmannahafnarháskóla er hún nefnd mikilvægasta danska konan á sviði tölvunarfræði og afrek hennar tíunduð í sömu andrá og afrek Ada Lovelace og Grace Murray Hopper. Hennar tölvunarfræðirannsóknir sem hún vann að hluta til með eiginmanni sínum voru brautryðjandi og nýttust á sviði tölvusneiðmyndatækni til að greina heilastarfsemi. Hún vann bæði við þróun hugbúnaðarins og tölvubúnaðarins. Tæknin nýtist í dag við greiningar á Parkinsons & Alzheimer,“ heldur Björn áfram.
Á miðjum áttunda áratugnum stofnaði hún fyrirtækið Medimatic A/S sem þróaði hugbúnað fyrir gammamyndavélar fyrir tölvusneiðmyndatökur. Tæknin var seld til fjölda spítala í Evrópu.
Árið 1987 varð hún prófessor við tölvunarfræðideild Hróarskelduháskóla þar sem hún starfaði þar til hún fór á eftirlaun.
Hægt er að lesa minningargrein Kaupmannahafnarháskóla um Eddu hér.