Þórunn Antonía Magnúsdóttir var á spítala nýverið og er opinská á Instagram síðu sinni um aðstæður þar, sem hún segir ekki nægilega góðar, hvorki fyrir starfsmenn né sjúklinga.
„Mig langar að segja takk fyrir öll fallegu skilaboðin sem ég hef fengið undanfarna daga á meðan ég var á spítalanum og mig langar að endurtaka það að heilbrigðisstarfsfólk Íslands eru hetjur sem eru að gera sitt allra besta undir fáránlegum kringumstæðum,“ segir Þórunn Antonía.
Hún segir starfsfólk vinna undir fáránlegum kringumstæðum fjársveltingu ríkisins. „Þetta er ekki boðlegt, þetta er lífshættulegt sjúklingum og heilbrigðisstarfsmönnum,“ segir Þórunn Antonía.
„Þau vilja reyna sitt besta og hjálpa öllum en það getur engin manneskja unnið undir þessum kringumstæðum. Mín spítaladvöl var eins og einhver sirkus og það er ekki heilbrigðisstarfsfólki að kenna, það er fjármagnsleysi frá ríkinu um að kenna.“