Milljón krónur fermetrinn: 26 fermetra stúdíóbúð í Hafnarfirði á 26 milljónir

Fermetraverð hefur rokið upp úr öllu valdi á undanförnum árum og er ekki langt síðan fermetraverð á flottustu íbúðum miðborgarinnar fór í milljón krónurnar.

Í Hafnarfirði hefur fermetraverð einnig náð einni milljón en nú er til sölu 26,1 fermetra stúdíóíbúð við Miðvang 41 sem kostar 26,5 milljónir króna. Kostar fermetrinn því á milljón krónur og fimmtán þúsund krónum betur.

Í sölulýsingu Höfða fasteignasölu kemur fram að um sé að ræða „fallega samþykkta stúdíóbúð“ á jarðhæð í vesturenda hússins. Húsið sem um ræðir er byggt árið 1971 og er 1 herbergi, 1 baðherbergi og þvottahús í íbúðinni.

„Íbúðin Skiptist í forstofu með fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta af vegg. Þar er sturtuklefi, upphengt klósett, handklæðaofn og tengt fyrir þvottavél. Eldhúsið er með ágætri innréttingu. þar er eldavél og ofn ásamt uppþvottavél og ísskáp. Stofan er með parketi á gólfi.“