Milla Ósk bannaði barnasturtuna: „Þetta er einhvers konar blanda af mótþróaröskun og hjátrú“

Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra og fyrrverandi fréttakona, opnar sig um meðgönguna í Morgunblaðinu í dag. Hún á von á sínu fyrsta barni með Einari Þorsteinssyni, fyrrverandi fréttamanni, í apríl næstkomandi.

„ég hef alltaf verið mjög barngóð og haft mörg börn í kringum mig, en ég var mjög lengi að ákveða hvort mig langaði í barn yfirhöfuð. Ég á tvær stjúpdætur sem hafa gefið mér meira en ég hefði getað ímyndað mér og lengi vel fannst mér það bara nóg. Það var ekki fyrr en ég komst að því að ég væri með skemmd á öðrum eggjastokki og ætti hugsanlega erfitt með að eignast barn, að mig fór virkilega að langa það,“ sagði Milla.

„Fyrstu mánuði þessarar meðgöngu var allt á fullu í kosningabaráttunni fyrir síðustu alþingiskosningar, með tilheyrandi stjórnarmyndunarviðræðum og ráðuneytisvinnu eftir kosningarnar. Svo fór ég yfir í heilbrigðisráðuneytið og þá birtist Ómíkron sem hefur sett mark sitt á síðustu vikur. En blessunarlega hefur þetta gengið ótrúlega vel og vonandi heldur það áfram.“

Milla segir að það sem hafi mest komið henni á óvart við meðgönguna sé pressan frá samfélaginu að kaupa mikið af vörum handa barninu, og svo hvað má borða, drekka og gera á meðan kona gengur með barn. „Og svo jú líka hvað það er erfitt að finna góðar óléttusokkabuxur – ég held að allir í kringum mig hafi fengið að heyra af raunum mínum við sokkabuxnakaup á síðustu mánuðum,“ sagði Milla.

Hún hefur ekki keypt mikið:

„Ég hef lagt mikið upp úr því að kaupa sem minnst og harðbannaði til dæmis barnasturtuna góðu (e. babyshower), vinkonum mínum til mismikillar ánægju. Þetta er einhvers konar blanda af mótþróaröskun og hjátrú hjá mér, held ég.“