Í fyrsta sinn leitar Félag íslenskra bókaútgefanda til almennings til að dæma bækurnar fyrir Íslensku bókmenntaverðlaunin í ár.
Athygli vekur að miklu fleiri konur sækjast eftir dómnefndarstörfum eða 202 á móti 28 körlum en Hildur Loftsdóttir hjá Félaginu segir viðbrögðin hafa verið langt umfram því sem búist var við.
Leitað er að einstaklingum á ólíkum aldri, með fjölbreyttan bakgrunn og menntun, til þess að velja athyglisverðustu bækur ársins í dómnefnd Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bókaforlögin leggja fram bækurnar og lesa þeir sem veljast í dómnefnd 40 bækur og fá þær til eignar og 125 þúsund fyrir vinnuna.
Í morgun höfðu 230 umsækjendur sótt um starf í einni eða fleiri dómsnefndum sem velja bækir fyrir Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Um er að ræða dómnefndir í flokki fagurbókmennta, dómnefnd um barna- og ungmennabækur og dómnefnd í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Starfstímabilið er frá 10. september til 25. nóvember.
Rætt er stuttlega við Bryndísi í 21 í kvöld.
Svona hafa umsóknir skipst miðað við upplýsingar frá í morgun, þriðjudaginn 25.ágúst.
144 sóttust eftir starfi í dómnefnd í flokki barna- og ungmennabóka (35%)
171 sóttist eftir starfi í dómnefnd fagurbókmennta (42%)
94 sóttust eftir starfi í flokki fræðirita og bóka almenns efnis (23%)