Óhætt er að segja að miklir fagnaðarfundir hafi orðið í gærkvöldi þegar hundurinn Hemmi, 11 ára Chihuahua-rakki, kom í leitirnar eftir að hafa verið týndur í tvo sólarhringa.
Sandra Ósk Jóhannsdóttir, sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu, birti myndband af endurfundunum á Twitter-síðu sinni í gær en hún hafði leitað til Twitter-samfélagsins um aðstoð við leitina. Hemmi var staddur í sumarbústað í Öndverðarnesi þegar hann ráfaði burt að kvöldi sunnudags.
Til allrar hamingju fannst Hemmi í gærkvöldi og var hann við ágæta heilsu ef marka má meðfylgjandi myndband. Ottó Erling Kjartansson, eigandi Hemma, segir í samtali við Hringbraut að Hemmi hafi verið svangur og kaldur og það hafi verið hálf óraunverulegt að sjá hann.
Aðspurður hvort vonin hafi verið orðin lítil eftir tveggja daga leit viðurkennir hann að hafa verið orðinn svartsýnn. Hemmi fannst ekki ýkja langt frá bústaðnum og segir Ottó að leitarhópar hafi verið búnir að leita á umræddu svæði áður. Bætir hann við að Hemmi hafi sofið vel í nótt en farið verði með hann á dýraspítalann á eftir til að kanna heilsu hans betur.
HEMMI ER FUNDINN HEILL Á HÚFI! pic.twitter.com/qpiFqirOGC
— Sandra Ósk Jóhannsdóttir (@sandra_johanns) August 24, 2021
HEMMI ER FUNDINN HEILL Á HÚFI! pic.twitter.com/qpiFqirOGC
— Sandra Ósk Jóhannsdóttir (@sandra_johanns) August 24, 2021
Heppnuð leit kemur skapinu alltaf í lag! Hundasveitin og Dýrfinna out 🐾🐕 pic.twitter.com/7s1ewlBWRd
— Sandra Ósk Jóhannsdóttir (@sandra_johanns) August 24, 2021