Miklar breytingar á skipulagi icelandair group

Icelanda­ir Group hef­ur gert mikl­ar breyt­ing­ar á skipu­lagi fé­lags­ins og nýtt skipu­rit hefur tekið gildi. Meðal annars eru gerðar breyt­ing­ar á fram­kvæmda­stjórn. Eft­ir breyt­ing­arnar mun starf­semi Icelanda­ir skipt­ast í átta svið sem sam­an­standa af fjór­um kjarna­sviðum og fjór­um stoðsviðum. Mbl.is greinir frá.

Kjarna­sviðin fjögur verða sölu- og þjón­ustu­svið, flugrekstr­ar­svið, flug­flutn­inga­svið og flugvélaleiga og ráðgjöf. Stoðsviðin fjögur verða fjár­mála­svið, mannauðssvið, sta­f­ræn þróun og upp­lýs­inga­tækni og flug­floti og leiðar­kerfi. Framkvæmdastjórar þessara átta sviða munu mynda framkvæmdastjórn Icelandair ásamt Boga Nils Bogasyni, forstjóra félagsins.

Icelandair Group er móðurfélag Icelanda­ir, Loft­leiða, Icelanda­ir Hotels, Fjár­vak­urs og Ice­land Tra­vel og hef­ur verið tek­in ákvörðun um að und­ir­búa sölu á Ice­land Tra­vel.