Áskoranir til að viðhalda nýsköpunarhugsunarhætti, mikilvægi trausts, þrír góðir hlutir, sterkar taugar til Landsspítalans, vinnustaðamenning og jafnræðisregla á tímum Covid í þættinum Stjórnandanum á Hringbraut.
Anna Stefánsdóttir, Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, Hafdísi Jónsdóttir og Virpi Jokinen eru í þætti kvöldsins hjá Huldu Bjarnadóttur í Stjórnandanum á Hringbraut.
Konur eru og hafa verið máttarstólpar í heilbrigðiskerfinu
Anna Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur, stjórnarkona og Þakkarviðurkenningarhafi FKA 2020 fjallar um sterkar taugar til Landspítalans og hve konur hafa lagt ríkan skerf til byggingar Landsspítala og stutt ýmis mikilvæg verkefni. „Konur eru og hafa verið máttarstólpar í heilbrigðiskerfinu,“ segi Anna sem segir mikilvægt að vinna með þor og styrkleika og minnir á mikilvægi þess að ræða ólíka stjórnunarstíla og ólíkar nálganir.
Heilsuefling og hreyfing mikilvægur þáttur fyrir okkur öll til að tækla áskoranir á tímum Covid
Hafdísi Jónsdóttir fyrrum formaður FKA og eigenda Laugar Spa og World Class kallar eftir jafnræðisreglu á tímum Covid og er á persónulegum nótum í settinu hjá Huldu. Dísa, eins og við þekkjum hana, segist létt í bragði ekki vanta plássið til að æfa á sautján stöðvum sem hún á og rekur en að hún vilji fá viðskiptavini sína til að mæta. Heilsuefling og hreyfing mikilvægur þáttur fyrir okkur öll til að tækla áskoranir á tímum Covid.
Nýsköpunarmenning
„Áskorun að viðhalda góðri nýsköpunarmenningu,“ segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fiskiðnaðar hjá Marel og FKA Viðurkenningarhafi 2020. Guðbjörg er þekkt fyrir sinn einstaka stíl og ferskan stjórnendastíl og ræðir mikilvægi trausts á vinnustöðum og viðskiptalífinu og fer yfir það hvernig við byggjum upp traust. „Þú þarft að ígrunda það vel og vera til staðar þar sem þú vit byggja upp traust,“ segir Guðbjörg sem er sannfærð um að fjölbreytileiki er nauðsynlegur til að skapa eitthvað nýtt.
Mikilvægi þess að kunna að gefa og þiggja
Virpi Jokinen Á réttri hillu er með jólaráð fyrir okkur þar sem hún leggur áherslu á að fólk geri æfinguna „þrír góðir hlutir“ á hverjum degi. Hún hvetur okkur til að gera góðverk – því það gefur okkur svo mikið en leggur áherslu á mikilvægi þess að þiggja og gefa. Við verðum stundum að leggja stoltið til hliðar.
Stjórnandinn á Hringbraut, þriðjudaginn 15. desember 2020 kl. 21.30.
Þáttinn má sjá hér
Stjórnandinn er niðurtalning FKA í Viðurkenningarhátíð FKA sem fer fram 27. janúar 2021.
Á Viðurkenningarhátíðinni verða að venju þrjár konur heiðraðar.
#fka #Hringbraut #Sjóvá #Íslandsbanki #fkaviðurkenningarhátíðin2021