Mikilvæg skilaboð frá bráðamóttöku Landspítalans

Alls leituðu 245 einstaklingar á bráðamóttöku Landspítalans vegna rafskútuslysa á tímabilinu júní, júlí og ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans, sendi fjölmiðlum í dag.

Þar er fjallað um rafskútuslys og mikilvægi þess að nota slíkan fararskjóta ekki undir áhrifum áfengis. Tölurnar sýni að áfengi virðist eiga nokkuð stóran þátt í fjölda slysa.

Rafskútuslysum fjölgar samhliða aukinni notkun, en bent er á að á sama tímabili 2020 hafi 149 einstaklingar leitað til bráðamóttökunnar vegna þessar slysa.

„Meðalfjöldi rafskútuslysa hefur því aukist úr 1,6 einstaklingum á dag sumarið 2020 í 2,7 á dag sumarið 2021. Alls slösuðust 72 börn með þessum hætti síðast liðið sumar sem er óveruleg aukning frá sumrinu 2020 þegar 68 börn slösuðust við notkun á rafskútu. Fjöldi 18 ára og eldri jókst hins vegar upp í 173 í ár en var 81 á síðasta ári. Flestir áverkar vegna þessara slysa reyndust ekki alvarlegir. Fjórir einstaklingar þurftu bráða innlögn á Landspítala en aðrir útskrifuðust heim af bráðamóttöku.“

Meðalfjöldi slasaðra reyndist 2,7 einstaklingar á dag en þessi slys voru talsvert algengari um helgar. Þannig voru að meðaltali 3,7 slys á dag um helgar en virku dagana 2,2 slys. Einnig er sláandi að um helgar verður rúmur helmingur þessara slysa á tímabilinu frá klukkan 23 að kvöldi til 5 að morgni. Á virkum dögum er slysatíðnin önnur og mun jafnari yfir sólarhringinn fyrir utan að fá slys verða yfir blánóttina.

Einnig hefur hlutfall slysanna sem verður um helgar aukist umtalsvert. Slysum virka daga hefur fjölgað um helming en fjöldi slysa um helgar rúmlega tvöfaldast þegar árið 2021 er borið saman við 2020.

Bent er á rannsókn á slysum vegna rafskúta sumarið 2020 sem birt var í Læknablaðinu síðasta vor. Þar kom fram að um 40% þeirra fullorðinna sem leituðu á bráðamóttöku höfðu slasast undir áhrifum áfengis. Sumarið 2021 var ekki skráð sérstaklega hvort slysið hafi orðið undir áhrifum vímugjafa. Fjöldi fullorðinna slasaðra kringum miðnættið um helgar í sumar bendir þó sterklega til þess að áfram sé notkun á rafskútum undir áhrifum áfengis og annarra vímugjafa að valda umtalsverðum hluta þessara slysa.

„Búast má við því að öll þau sem hafa hlotið alvarlegri áverka hafi leitað á bráðamóttöku Landspítala og þau slys komi fram í tölum bráðamóttökunnar. Í einhverjum tilvikum hafa þó einstaklingar með minni háttar áverka leitað á heilsugæslu eða ekki talið þörf á að leita til heilbrigðiskerfisins. Því er líklegt að heildafjöldi slysa sé eitthvað hærri en fram kemur í tölum bráðamóttökunnar.“

Í orðsendingu sinni segir Hjalti Már að þó rafskútur séu ódýr og umhverfisvænn samgöngumáti fylgi notkun þeirra nokkur slysatíðni.

„Vegna mikilla vinsælda þessa samgöngumáta er brýnt að halda áfram að efla innviði höfuðborgarsvæðisins til að auka öryggi vegfarenda. Umtalsvert hlutfall slysanna sem verða undir áhrifum áfengis að næturlagi um helgar kallar á aukna fræðslu til almennings um hættuna á því að nota rafskútur undir áhrifum vímugjafa. Einnig er líklegt að bættar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu að næturlagi um helgar gæti dregið úr slysatíðni.“

Í lokin eru svo tilteknar nokkrar ráðleggingar til almennings vegna rafskútunotkunar:

  • Læra þarf að nota rafskútu, alveg eins og að læra að hjóla. Farðu sérstaklega varlega á meðan verið er að venjast farartækinu
  • Aldrei fleiri en einn á rafskútu
  • Hægðu á þér í beygjum og þegar farið er yfir ójöfnur
  • Ekki, alls ekki nota rafskútu undir áhrifum áfengis eða annara vímuefna