Mikill við­búnaður eftir að barn hringdi í neyðar­línuna

Bæði slökkvi­lið og lög­regla voru send af stað þegar neyðar­línunni barst sím­tal frá barni sem til­kynnti um eld. Ekkert meira kom fram í sam­talinu sem lauk ör­skömmu síðar.

Í skeyti lög­reglunnar á Suður­landi um verk­efni liðinnar viku kemur fram að sím­talið hafi verið rakið í heima­hús í austur­hluta um­dæmisins. Við­bragðs­aðilar brugðust að vonum skjótt við og fór lög­regla og slökkvi­lið af stað. Ekki reyndist vera fótur fyrir til­kynningunni en barnið fannst og var, að ósk for­eldra þess, rætt við það um hvernig eigi að nota 112.

Lög­reglan á höfuð­borgar­svæðinu hefur haft í mörg horn að líta að undan­förnu. Alls voru 33 kærðir fyrir of hraðan akstur í um­dæminu í síðustu viku, en af þeim voru 24 gómaðir á svæðinu í kringum Vík og Kirkju­bæjar­klaustur.

Þá voru tvö þjófnaðar­mál skráð í dag­bók lög­reglu. Í báðum til­fellum var reiðu­fé stolið af er­lendum ferða­mönnum. Farið var inn í öku­tæki við fjöl­farna ferða­manna­staði og peningar teknir.