„Ég held að það hafi ekki farið fram hjá neinum á fundinum á fimmtudaginn að fyrir mig persónulega var þetta mikill sorgardagur og einn sá erfiðasti sem að ég hef upplifað. Að ráðast í svo afdrifaríkar aðgerðir er ekki léttvægt.“
Þetta segir Styrmir Þór Bragason, forstjóri Arctic Adventures, í bréfi sem hann sendi starfsfólki sínu í morgun. Viljinn birtir bréfið á vef sínum.
Eins og greint var frá fyrir helgi sagði fyrirtækið upp öllu starfsfólki sínu, alls 152 einstaklingum. Mjög erfið staða er uppi í íslenskri ferðaþjónustu vegna COVID-19 faraldursins enda hefur straumur ferðamanna til landsins stöðvast algjörlega síðustu vikurnar.
„Það er öllum ljóst að á endanum eru það alltaf viðskiptavinir fyrirtækisins sem greiða okkur launin sem og annan rekstrarkostnað,“ segir Styrmir í bréfi sínu og segir erfitt að þurfa að sjá að baki vinum og samstarfsmönnum sem hafa lagt sig hart fram við að búa til alþjóðlegt framúrskarandi fyrirtæki.
Styrmir segir að vonir standi til að fyrirtækið geti endurráðið sem flesta til starfa á nýjan leik. Næstu vikur fari í að skoða reksturinn og tryggja að Arctic Adventures geti komið sterkt til baka.
Í bréfi sínu talar Styrmir einnig um að borið hafi á neikvæðum ummælum í garð Arctic Adventures. Borið hafi á fordómum og þjóðernishyggju í því samhengi, segir Styrmir.
„Starfsfólk Arctic Adventures kemur víða að, fjölbreytileika okkar ber að fagna og í honum felst mikill styrkur. Gleðjast á yfir því að fólk frá 36 löndum með mikla menntun, verkþekkingu og metnað hafi kosið það sem starf sitt að sýna ferðamönnum bestu hliðar landsins,“ segir hann og bætir við:
„Það veldur mér miklum vonbrigðum að sjá fordóma og þjóðernishyggju blossa upp á jafn ógeðfelldan hátt og raun ber vitni. Ég tek ummælum í garð starfsfólks Arctic Adventures persónulega. Saman, í öllum fjölbreytileika okkar, óháð þjóðerni, búsetu, kyni, kynþætti eða kynhneigð, höfum við gert Ísland að betri áfangastað og af því eigum við að vera stolt.“
Bréfið má lesa í heild sinni á vef Viljans.