Andrúmsloftið í Héraðsdómi Reykjavíkur var þungt þegar aðalmeðferð í máli Semu Erlu Serdar, formanns Solaris, gegn Margréti Friðriksdóttur hófst í dag. Margrét er sökuð um hótanir í garð Semu Erlu kvöld eitt í ágúst árið 2018.
Fréttablaðið var viðstatt aðalmeðferðina þegar Sema Erla og Margrét gáfu skýrslu.
„Þetta var ekki í fyrsta skipti sem ég hef lent í svona ofsóknum af hálfu þessarar konu,“ sagði Margrét meðal annars en í frétt Fréttablaðsins kemur fram að finna hafi mátt miklar tilfinningar og spennu á milli Semu Erlu og Margrétar. Þurfti dómari á einum tímapunkti að biðja Margréti um að hafa sig hæga og þá bað Arnar Þór Jónsson lögmaður skjólstæðing sinn, Margréti, um að hafa sig hæga.
Í umfjöllun Fréttablaðsins er haft eftir Semu Erlu að henni hafi stafað ógn af Margréti – og stafi raunar enn. „Hún er mjög hættuleg,“ sagði hún og bætti við að heiftin í Margréti umrætt kvöld hefði verið mikil.
Kemur fram í frétt Fréttablaðsins að Margrét hefði flissað meðan Sema Erla lýsti kvöldinu og aðförum Margrétar gagnvart sér. „Ég trúði því að hún ætlaði að drepa mig þegar hún var að segja það,“ sagði Sema Erla og vakti athygli á því að Margrét væri hlægjandi inni í salnum á meðan hún væri að gefa skýrslu.
Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsins.