Mikil reiði vegna bréfa­skrifta þjálfara Breiða­bliks til for­eldra: „Þetta er mjög al­var­legt“

Þjálfarar 4. flokks kvenna í Breiða­blik sendur frá sér bréf til for­eldra stúlkna í flokknum þar sem mælst er til þess að leik­menn á yngra ári í flokknum fari ekki á ball og í sund­lauga­partý sem haldið er í tengslum við al­þjóð­lega knatt­spyrnu­mótið ReyCup sem hefst í Reykja­vík í dag. Frétta­blaðið greindi frá málinu og birti bréfið í heild sinni.

Þjálfararnir segja mis­munandi aldurs­stig þátt­tak­enda, sitt­hvora menningar­heima sem og sögu­sagnir frá fyrri við­burðum standa að baki af­stöðu þeirra, en stjórn­endur Rey Cup segja í svörum til Frétta­blaðsins að allt sé unnið eftir bókinni við skipu­lagninguna.

Stelpurnar sem um ræðir eru í 8. bekk og því 13 til 14 ára gamlar. Lið á mótinu í ár eru, utan Ís­lands, frá Bret­landi, Kanada og Noregi.

Ekki eru allir sáttir með orða­lagið en þar er talað um drengi frá „ó­líkum menningar­heimum“ séu vanda­málið fremur en ís­lenskir drengir og saka net­verjar þjálfara Breiða­bliks um ras­isma.

Þá velta ein­hverjir fyrir sér af hverju það er verið að banna stelpunum að mæta á ballið fremur en að banna þeim strákum að mæta sem kunna ekki að haga sér.