Mikið hefur áunnist varðandi hagræðingu með kvótakerfinu

Adolf Guðmundsson kannast margir við en hann var m.a. formaður LÍÚ á árunum 2008-2014. Hann ólst upp í Reykjavík en fór 19 ára gamall til Seyðisfjarðar til að þjálfa knattspyrnulið en sjálfur lék hann knattspyrnu og handbolta með Víking á yngri árum. Aldrei sneri hann aftur til baka því þar kynntist hann núverandi eiginkonu sinni sem er dóttir þáverandi eiganda Gullbergsins, Ólafs M. Ólafssonar sem gerði út togara frá Seyðisfirði. Hann nam lögfræði og menntunin nýttist honum vel í starfi og tæpum 10 árum eftir hann fluttist í þorpið var hann ráðinn framkvæmdastjóri Gullbergsins þegar tengdafaðir hans ákvað að láta af störfum. Það er mat Adolfs að núverandi fiskveiðikerfi hafi skilað mikilli hagræðingu fyrir sjávarútvegsfyrirtækin í landinu. Hann viðurkennir að kvótakerfið sé umdeilt eins og margt annað fyrirkomulag í íslensku lagaumhverfi en nefnir í viðtali við þáttastjórnandann Sigurð K. Kolbeinsson fjölmörg dæmi um fækkun fiskiskipaflotans í nýrri og öflugri skip þar sem hagræðing hefur verið innleidd með tilheyrandi árangri og sterkari stöðu sjávarútvegsfyrirtækja sem voru að „lepja dauðann úr skel“ áður en kerfið var tekið upp árið 1984. Adolf kemur einnig inná mannfjöldaþróun á Seyðisfirði en þegar afla brestur varð og önnur af fiskvinnslum þorpsins varð gjaldþrota árið 1990 og hreif það með sér um 30% bæjarbúa sem fluttu í önnur byggðarlög. Síðan hefur íbúafjöldi Seyðisfjarðar nánast staðið í stað að mestu og er nú um 700 manns. Adolf ræðir einnig um þýðingu þess að Norræna komi til hafnar þar i hverri viku sem hefur óneitanlega verið mikil lyftistöng fyrir Seyðisfjörð. Hann kemur einnig inná fyrirhuguð jarðgöng um Fjarðarheiði sem nú eru komin á vegaáætlun og þýðingu þeirra fyrir byggðarlagið og hugsanlega nágranna byggðarlög eins og t.d. Neskaupsstað ef frekari jarðgöng verða byggð á Austurlandi sem tengja munu Seyðisfjörð, Mjóafjörð og Norðfjörð og mynda þannig eitt atvinnu og þjónustusvæði. Adolf er hafsjór af reynslu þegar kemur að umræðu um sjávarútvegsmál og því fróðlegt að hlusta á hans skoðanir í þeim efnum.

Hlaðvarpið Lífið er lag er hægt að nálgast á Spotify sem og flestum öðrum streymisveitum og einnig á heimasíðunni ferdaskrifstofaeldriborgara.is