Mikil umræða hefur myndast í samfélaginu um samfélagsmiðilinn OnlyFans síðustu misseri. Á honum getur fólk gerst áskrifendur hjá notendum og greitt þeim fast mánaðargjald og fengið þannig aðgang að því myndefni sem notendurnir setja inn. Það efni er í langflestum tilvikum af kynferðislegum toga.
Fjöldi ungra íslenskra kvenna hefur undanfarið stigið fram í viðtölum og rætt miðilinn; þar framleiði þær kynferðislegt efni sem aðrir kaupa og græða jafnvel milljónir króna á því á stuttum tíma. Skiptar skoðanir hafa verið um málið; sumum finnst kynlífsiðnaðurinn ósiðlegur en margir hafa bent á að með miðlinum taki konur sjálfar stjórnina á kynlífsiðnaðinum.
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta, var til viðtals um þetta í nýjasta tölublaði DV. „Þetta sýnir okkur að það er mikið af ungum íslenskum konum sem taka þátt í kynlífsiðnaðinum með einhverjum hætti. Núna er greinilega vinsælt að gera það í gegnum OnlyFans,“ segir hún.
Hún segir að Stígamót hafi áralanga reynslu af að vinna með fólki sem hefur reynslu úr vændi og klámi og afleiddum gerðum þess. Stígamót bjóði upp á aðstoð fyrir fólk sem kemur illa út úr iðnaðinum, sem Steinunn segir að sé „meirihluti fólks“.
Þá segir hún að einhverjir sem eru á OnlyFans séu í viðtölum hjá Stígamótum en miðillinn sé of nýr til að hún geti almennilega borið hann saman við hefðbundnari miðla í kynlífsiðnaðinum.
„Þegar fólk kemur til okkar kemur það algjörlega á eigin forsendum. Sumir eru kannski að vinna úr afleiðingum kynferðisofbeldis í æsku eða afleiðingum þess að hafa alist upp á heimili þar sem beitt var ofbeldi. Margir sjá tengingu þarna á milli, að þeir séu að selja klám eða vændi því þeir hafa ekki unnið úr þessum afleiðingum. Við þekkjum það vel hjá fólki sem hefur orðið fyrir því að mörkin þeirra eru margbrotin snemma á lífsleiðinni þannig að því finnst klám og vændi vera möguleiki fyrir sig,“ segir Steinunn.
„Sumum finnst það jafnvel valdeflandi á einhverjum tímapunkti – þar til það er það allt í einu ekki lengur. Við hér á Stígamótum mætum manneskjunni þar sem hún er stödd hverju sinni. Ef það þýðir að hún er áfram á OnlyFans, kannski því það er eina leiðin til að afla tekna, þá er það bara þannig.“