Mikael Torfason, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri, segir að Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, hafi neitað að sitja í sama herbergi og hann þegar Mikael keypti af honum raðhús í Grafarvogi fyrir margt löngu.
Mikael segir frá þessu í hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar og hefur fréttavefur DV birt brot úr þættinum.
Mikael, sem var ritstjóri DV þegar Ísafjarðarmálið svokallaða kom upp árið 2006, opnar sig meðal annars um það mál en eins og kunnugt er svipti Gísli Hjartarson sig lífi þegar hann fékk veður af því að til stæði að fjalla um kynferðisbrot hans.
,,Ástæðan fyrir því að þetta var svona umdeilt var að við vorum að kroppa í sár sem enginn hafði þorað að kroppa í. Varðandi kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum og kynbundið ofbeldi og fleira. Það var á þessum tíma raunverulegt að skömmin var þín ef þú varst fórnarlamb,” segir Mikael meðal annars í þættinum.
Hann viðurkennir að fréttin hafi verið glannalega skrifuð, þannig hafi verið óþarfi að segja að hann væri einhentur. Umfjöllun DV vakti gríðarlega hörð viðbrögð og segir Mikael að hann hafi meðal annars þurft að fara með börn sín út á land vegna hótana.
Mikael segir þó að það skrýtnasta sem hann lenti í eftir þetta hafi gerst þegar hann var að kaupa raðhús í Grafarvogi. Búið var að ganga frá öllu og svo áttu kaupendur og seljendur að hittast til að skrifa undir afsal.
„Síðan kemur fasteignasalinn inn í herbergi til okkar og þá erum við að kaupa hús af Kristni H. Gunnarssyni, þingmanni vestan af fjörðum,“ segir Mikael og bætir við að kristinn og Gísli Hjartarson hafi verið vinir.
„Fasteignasalinn segir að Kristinn neiti að vera í sama herbergi og ég og hann hljóp bara á milli herbergja til að klára þetta.” Kristinn var þingmaður á árunum 1991 til 2009 þar sem hann sat til dæmis fyrir Framsóknarflokkinn og Frjálslynda flokkinn.