Mikael og Hjalti eru hetjur dagsins: Söfnuðu 30 þúsund krónum á ör­fáum dögum

Evrópu­deild Al­þjóða Rauða krossins birti mynd af tveimur ís­lenskum piltum, Mikael og Hjalta, á Twitter-síðu sinni í dag. Segja má að Mikael og Hjalti séu hetjur dagsins enda létu þeir sitt ekki eftir liggja þegar þeir fréttu af hörmungunum í Líbanon í síðustu viku.

At­hygli er vakin á þessu á Face­book-síðu Rauða krossins hér á landi þar sem fólki er þakkaður stuðningurinn vegna harm­leiksins í Beirút þar sem yfir 200 létust og mörg þúsund særðust. Öflug sprenging við höfnina lagði stóran hluta borgarinnar í rúst.

Í færslu Evrópu­deildar Rauða krossins segir meðal annars: „Þú ert aldrei of ungur til að gera gæfu­muninn.“ Kemur fram að eftir að þeir Mikael og Hjalti sáu mynd­bönd af sprengingunni hafi þeir viljað leggja sitt af mörkum fyrir fólkið í Beirút. Söfnuðu þeir alls 30 þúsund krónum sem munu vafa­lítið koma fólki í neyð til góða.

Rauði krossinn minnir á að söfnunin sé enn í gangi og að margt smátt geri eitt stórt.

„Sendu SMS-ið HJALP í 1900 og styrktu söfnunina um 2900 kr. eða legðu inná söfnunar­reikninginn: 0342-26-12, kt. 530269-2649.“