Þórdís Gísladóttir, rithöfundur, þýðandi og ljóðskáld, segir frá miður skemmtilegu atviki sem hún varð vitni að á göngustíg í Kópavogi. Þórdís segir frá atvikinu á Twitter þar sem hún er mjög virk.
Þannig er mál með vexti að Þórdís átti erindi til Sýslumannsins í Kópavogi en eitthvað varð til þess að hún villtist.
„Fór til sýslumannsins í Kópavogi og villtist bara tvisvar. Í seinni villunni sá ég mann fróa sér á göngustíg. Datt ekki í hug að skipta mér af því rúnki,“ segir hún í færslunni sem vakið hefur nokkra athygli.
Í athugasemd spyr einn hvort hún hafi ekki tekið mynd en þeirri spurningu svarar hún neitandi. „Nei, reyni bara að gleyma þessu. Skil svolítið að maðurinn hafi þurft að fá útrás í þessum steinsteypufrumskógi og gatnaslaufum. Hann hefur örugglega líka verið villtur.“
Fór til sýslumannsins í Kópavogi og villtist bara tvisvar. Í seinni villunni sá ég mann fróa sér á göngustíg. Datt ekki í hug að skipta mér af því rúnki.
— Þórdís Gísladóttir (@thordisg) September 1, 2020