Þingmenn Miðflokksins hafa óskað eftir því að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra vinni skýrslu um viðbrögð við uppgangi skipulagðrar glæpastarfsemi hér á landi.
Vilja þingmennirnir, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson og Þorsteinn Sæmundsson, að Áslaug Arna flytji Alþingi skýrslu um aðgerðir sem hefur verið ráðist í og til stendur að ráðast í tila ð vinna gegn uppgangi skipulagðrar glæpastarfsemi eftir ábendingar í skýrslum greiningardeildar ríkislögreglustjóra í september 2015, október 23017 og maí 2019.
Óskað er eftir því að skýrslan taki meðal annars til eftirfarandi þátta:
a. Hvort lögð hafi verið áhersla á að fjölga lögreglumönnum sem rannsaka skipulagða glæpi og styðja betur við störf þeirra og til hvaða aðgerða hafi verið gripið í þeim efnum.
b. Hvort aukin áhersla hafi verið lögð á farþegalistagreiningar við landamæraeftirlit.
c. Hvort rannsóknarúrræði lögreglu hafi verið rýmkuð eða þeim fjölgað eftir ábendingar í skýrslunum. Þá er óskað eftir samanburði á rannsóknarúrræðum lögreglu hér á landi við úrræði lögreglu annars staðar á Norðurlöndum.
d. Hvort til standi að auðvelda brottvísanir erlendra aðila sem verða uppvísir að afbrotum sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi.
e. Hvernig og hvort frumkvæðislöggæsla lögreglu við afbrotavarnir hafi verið efld, m.a. með fjölgun almennra lögreglumanna sem henni sinna.
f. Hvort gripið hafi verið til aðgerða til að koma í veg fyrir að þeir sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi kunni, sökum bágrar félagsstöðu, að sæta misnotkun og kúgunum af ýmsum toga svo sem mansali, eða hvaða aðgerðir eru áformaðar til að vinna gegn slíku.
g. Hvort gripið hafi verið til aðgerða til að koma í veg fyrir að glæpasamtök misnoti opinbera þjónustu og kerfi sem lið í skipulagðri starfsemi þeirra. Þar er átt við bótakerfi, vinnumiðlun, móttökukerfi vegna flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd og ýmsa félagslega aðstoð sem stendur þeim til boða.
Miðflokkurinn telur að af fyrrgreindum skýrslum að dæma telji lögreglan aukna ógn stafa af skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi. Telur flokkurinn nauðsynlegt að kalla eftir upplýsingum um til hvaða aðgerða hafi verið gripið til að bregðast við umræddum ábendingum.