Tímamót urðu nú í kvöld þegar að byrjað var að selja bjór á Laugardalsvelli fyrir landsleik Íslands og Albaníu í Þjóðadeild UEFA. Um er að ræða fyrsta skiptið sem hægt er að kaupa bjór á heimaleik íslenska landsliðsins á Laugardalsvelli.
Búið er að koma fyrir tveimur söluskálum á Laugardalsvelli, einum í hvorri stúku þar sem hægt er að kaupa Lite-bjór á krana.
Samkvæmt frétt mbl.is tók miðasala á leikinn í kvöld kipp eftir fregnir af bjórsölunni.
„Við erum að koma til móts við hóp stuðningsmanna sem hafa verið að kalla eftir þessu reglulega í mörg ár. Við tókum síðan ákvörðunina að sækja um viðeigandi leyfi á viðeigandi stöðum og það fékkst,“ segir Ómar Smárason, upplýsingafulltrúi KSÍ, í samtali við mbl.is
„Það er verið að selja bjór á leikjum innanlands, bæði í fótbolta og körfubolta, sem og á öðrum viðburðum svo sem á tónleikum og í leikhúsi, þannig að við ákváðum að kýla á þetta og sækja um leyfið. Nú getum við því komið til móts við þennan stóra hóp sem hefur verið að kalla eftir þessu,“ bætir hann við.
Fjölmargir hafa fagnað því að hægt sé að fá bjór á landsleikjum og segir fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson þetta vera skref í rétta átt.
Við erum bara óðfluga að nálgast það að verða siðmenntuð þjóð. Vínsala leyfð á íþróttaleikjum og upphaf endaloka ÁTVR er hafið. Meira svona. pic.twitter.com/hE6ky6aoa0
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) June 6, 2022
Fréttablaðið birti myndband af bjórsölunni í kvöld sem virðist fara fram afar rólega og ekki mikil aðsókn í ölið. Hægt er að sjá myndbandið hér að neðan.