Miðeigendur á tónleika bresku poppstjörnunnar Lewic Capaldi sem áttu að fara fram í kvöld en var frestað seint í gær eru allt annað en sáttir með tónleikahaldara. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
Greint var frá því í gær að tónleikum var frestað vegna vandamáls sem upp kom við framkvæmd tónleikanna, líkt og því er lýst.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kostuðu miðarnir á tónleikana 15.900 krónur. Miðað við viðbrögð tónleikagesta á Facebook síðu Reykjavík Live eru gestir ekki sáttir og þá sérstaklega þeir sem koma langt að.
„Hvernig ætlið þið að bæta þetta upp fyrir okkur sem af landsbyggðinni koma og voru að lenda með flugi í morgun, bókaðan bílaleigubíl og annað? Úps, sorrý - komdu bara aftur er ekki alveg að virka fyrir mig þegar búið er að strauja kortinu fyrir 100 þúsund. Ég vona svo innilega að það verði hægt að plögga þessu fyrir fimmtudag. Virkilega skrítið að svona skuli vera tilkynnt með sólarhrings fyrirvara.“
Annar segir: „Ég veit um fólk sem kom med flugi í morgun utan af landi eingöngu fyrir þessa tónleika. Frí frá vinnu,flug,hótel og bílalegubíll til einskins. Þetta er svakalegt. Engin smá útgjöld útum gluggann fyrir marga sem geta svo ekki nytt sér aðra dagsetningu.“
Ákvörðunin ekki tekin af léttúð
Reykjavík Live svarar hverjum og einum athugasemdum fyrir sig. Segir þar meðal annars að vandræðin sem seinkað hafi tónleikunum hafi komið seint inn á borð tónleikahaldara, án þess að víkja nánar að því hvað gerðist.
„Svona ákvörðun er ekki tekin af léttúð. Við reyndum kannski of lengi að láta þetta ganga upp. Ef þú þekkir einhvern sem hefur orðið fyrir kostnaði og vandræða vegna þessa þá endilega láttu þau vera í sambandi við okkur,“ svarar Facebook síða tónleikahaldara einum sem segist vera kominn langt að.
„Það er mikið tjón að fresta með svona litlum fyrirvara - það vitum við sjálf. Við getum lítið annað gert en sagt fyrirgefðu og síðan reynt að bæta þetta upp,“ svarar tónleikahaldarinn öðrum sem einnig er vægast sagt ósáttur við tafirnar.